Eldræða Pútíns réttlætir innrás Rússa í Úkraínu - herlið sent af stað

Vladímír Pútín Rúss­lands­for­seti efað­ist um grund­völl úkra­ínsks ríkis í sjón­varps­ávarpi til þjóð­ar­innar í kvöld. Pútín hefur skipað rúss­neska hernum að hefja inn­reið sína í svæði aðskiln­að­ar­sinna í Austur-Úkraínu.

Eldræða Pútíns réttlætir innrás Rússa í Úkraínu - herlið sent af stað
Ávarp Pútíns Vladimir Pútín hefur lengi viðrað harm sinn vegna falls Sov­ét­ríkj­anna. Í kvöld gekk hann enn lengra, og það með mesta lið­söfnuð her­manna í Evrópu frá seinni heims­styrj­öld nærri landa­mærum Úkraínu. Mynd: AFP

Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seti virð­ist ætla að fylgja hand­rit­inu sem Joe Biden Banda­ríkja­for­seti hefur varað við und­an­farnar vikur, nú þegar hann heldur eld­messu um ógn­ina af Úkraínu í sjón­varps­ávarpi til rúss­nesku þjóð­ar­innar.

Í ræð­unni sagð­ist hann ætla að lýsa yfir við­ur­kenn­ingu Rússa á sjálf­stæði hér­að­anna Luhansk og Donetsk í Austur-Úkraínu, þar sem upp­reisn studd af Rússum hófst fyrir átta árum, og koma á sam­starfs- og vina­samn­ingi við svæðin. Um leið efað­ist Pútín um rétt­mæti þess að Úkraína væri sjálf­stæð frá Rússum og harm­aði það „brjál­æði“ að Sov­étlýð­veldi hafi fengið sjálf­stæði án fyr­ir­vara. Þetta ger­ist á sögu­legum skala eftir að Úkraína hefur hallað sér meira í átt að Vest­ur­löndum og lýst yfir áform um að sækja form­lega um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu árið 2024.

Uppfært kl. 22.10: Vladimir Pútín hefur fyr­ir­skipað rúss­nesku her­liði að hefja inn­reið sína í hér­uðin tvö í þeim til­gangi að hefja „frið­ar­gæslu“.

Stærsta herlið frá heimsstyrjöld

Rússar hafa und­an­farnar vikur safnað tæp­lega tvö hund­ruð þús­und manna her­liði nærri landa­mærum Úkraínu, bæði í Rúss­landi og Hvíta-Rúss­landi. Rússnesk yfir­völd hafa sam­hliða þrá­fald­lega þver­neitað fyrir ásetn­ing um inn­rás í Úkraínu. Á sama tíma hafa Banda­ríkja­menn varað við atburða­rás sem nú virð­ist vera í burð­ar­lið­unum, að Rússar myndu fram­kalla atburða­rás sem rétt­lætti inn­rás í ein­hverri mynd.

Ræða Pútíns markar tíma­mót í alþjóða­stjórn­málum. Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Breta, lýsti sjálf­stæð­is­yf­ir­lýs­ingu Pútíns á hér­uðum í Úkraínu sem „illum fyr­ir­boða“ og „myrku merki“. Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, sagði yfir­lýs­ingu Pútíns um sjálf­stæði hér­að­anna í Austur-Úkraínu vera hróp­andi brot á alþjóða­lögum, full­veldi Úkraínu og Minsk-samn­ingnum frá 2015.

Volodomyr Zelensky, for­seti Úkraínu, ræddi við Joe Biden Banda­ríkja­for­seta í kvöld og ráð­færði sig við Emmanúel Macron Frakklnds­for­seta og Olaf Scholz Þýska­landskansl­ara, ásamt því að kalla saman örygg­is­ráð Úkraínu.

Úkraína sköpuð af Rússum

Pútín sagði í ræðu sinni Úkraínu hafa verið skap­aða af Rússum, nánar til­tekið Lenín. Í því sam­hengi sagði hann að Úkra­ínu­menn sem vildu afvæð­ingu komm­ún­isma gætu fengið frá Rússum fulla afvæð­ingu komm­ún­isma og aft­ur­köllun þess sem komm­ún­istar gerðu fyrir Úkraínu.

Þá sagði hann að Úkraínu væri nú „stjórnað að utan“, að landið væri „leik­brúða“ Banda­ríkj­anna. Ræða Pútíns mið­aði að því að grafa undan hug­mynd­inni um rétt­mæti og lög­mæti úkra­ínsks ríkis og að draga upp mynd af árásum þess ríkis og ógn gagn­vart Rússum.

Fyrr í vik­unni sagði Pútín að „þjóð­ar­morð“ væri að eiga sér stað í Úkraínu. Hann end­ur­tók það í kvöld og hneyksl­að­ist á því að Vest­ur­lönd létu sig ekki varða þjóð­ar­morð 4 millj­óna manna. Nú segir hann frekara blóð­bað verða á herðum þeirra sem fara með völdin á land­svæð­inu Úkraínu. „Hvað varðar þá sem tóku og halda í völdin í Kyiv, við krefj­umst þess að þeir hætti strax öllum hern­að­ar­að­gerðum. Ef ekki verður áfram­hald­andi blóð­bað alger­lega á þeirra ábyrgð og full­kom­lega á sam­visku stjórn­valda sem ríkja yfir land­svæð­inu Úkraínu.“

Úkraína sé leikbrúða

Hann sagði Vest­ur­lönd nýta Úkraínu sem „tæki til að setja sig upp á móti“ Rússum og að af því staf­aði „okkur mjög mikil ógn“.

„Úkraína er orðin nýlenda af leik­brúðum,“ sagði Pútín. „Úkra­ínu­menn sólund­uðu ekki bara öllu sem við gáfum þeim í tíð Sov­ét­ríkj­anna, heldur öllu sem þeir erfðu frá Rúss­neska keis­ara­dæm­inu. Jafnvel því sem Katrín mikla skap­aði.“ Pútín hélt því fram að Rússland hefði verið „rænt“ þegar Sov­ét­ríkin féllu. Þannig hefði Úkraína „aldrei haft hefð fyrir eigin ríki“ og að hún væri reist á því að afneita sögu­legu minni millj­óna.

„Þetta er brjál­æði“
Vladimir Pútín
Rúss­lands­for­seti um skil­yrð­is­laust sjálf­stæði fyrr­ver­andi Sov­étlýð­velda

Hann sagði Úkraínu „und­ir­búa hern­að­ar­að­gerði gegn land­inu okkar“ og sak­aði stjórn­völd þar um að þróa kjarn­orku­vopn.

Um leið harm­aði Pútín að Rússland hefði misst yfir­ráðin yfir Sov­étlýð­eld­unum. „Við gáfum þessum lýð­veldum rétt á að yfir­gefa sam­bandið án nokk­urra skil­yrða eða fyr­ir­vara. Þetta er brjál­æði,“ sagði hann.

Ætla að sækja um aðild að Evrópusambandinu

Volodomyr ZelenskyGrínist­inn sem varð for­seti stendur nú frammi fyrir sögu­lega reiðum Rúss­lands­for­seta sem við­ur­kennir sjálf­stæði hér­aða í austur Úkraínu en ekki grund­völl úkra­ínsks ríkis.

Undir for­sæti Volodomyrs Zelenskis, leik­ara og grínista sem hafði leikið for­seta Úkraínu í sjón­varpi áður en hann fór í fram­boð, stefnir Úkraína á að sækja form­lega um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu árið 2024. Til­raunir til að ganga í ESB hófust þó fyrr, en árið 2014 urðu fjöl­menn mót­mæli evr­ópu­sinna í Kyiv sem leiddu til brott­hvarfs Rúss­lands­vin­ar­ins Viktors Yanukovic úr stóli for­seta. Síðar birt­ust vopn­aðir menn á lyk­il­stöðum á Krím­skaga og í Austur-Úkraínu í til­raun til að taka stjórn­ina á land­svæðum þar sem Rússar eru fjöl­mennir. 

Rússar eru einnig fjöl­mennir í öðrum nágranna­ríkjum Rúss­lands, til dæmis í Eystra­salts­ríkj­unum, en þau hafa þegar gengið til liðs við Nató.

Viðrar enn til innrásar

Biden Banda­ríkja­for­seti hefur ítrekað full­yrt að Pútín hafi þegar ákveðið að ráð­ast inn í Úkraínu. Tak­mark­aður gluggi er til inn­rásar áður en hlýrra loft veldur þíðu í jarð­vegi og gerir skrið­drekum erf­ið­ara að ferð­ast yfir landið. Nú þegar hafa verið birtar myndir af leðju í Úkraínu sem gæti hindrað för skrið­dreka.

Nýjustu yfir­lýs­ingar banda­rískra yfir­valda snúa að því að rúss­nesk yfir­völd hafi útbúið lista yfir Úkra­ínu­menn sem eigi að myrða eða senda í fanga­búðir eftir inn­rás.

Komi til inn­rásar hafa Banda­ríkja­menn lýst því yfir að þeir sendi ekki her­lið til Úkraínu, enda leiði slíkt til heims­styrj­aldar.

Eldræða Pútíns kom beint í kjöl­farið á hug­mynd Macrons Frakk­lands­for­seta um leið­toga­fund Pútíns og Bidens Banda­ríkja­for­seta fyrr í dag.

Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri Nató, sagði í kvöld að Rússland væri að reyna að búa til aðstæður til þess að ráð­ast inn í Úkraínu enn á ný. Þá sagði hann að Rússar væru að fjár­magna og vopn­væða upp­reisnar- eða aðskiln­að­ar­menn í Austur-Úkraínu, nokkuð sem Pútín hefur þrá­fald­lega þrætt fyrir.

Pútín „við­ur­kennir sjálf­stæði“Í kvöld und­ir­rit­aði Pútín yfir­lýs­ingu um að Rússland við­ur­kenndi sjálf­stæði Donetsk og Luhansk, hér­aða í aust­ur­hluta Úkraínu. Aðksiln­að­ar­sinnar hafa fagnað yfir­lýs­ing­unni með því að veifa rúss­neska fán­anum.

Nú hefur Pútín hins vegar lagt grunn­inn að rétt­mæti aðgerða Rússa í Úkraínu. Yfir­lýs­ing Pútíns er ekki stríðs­yf­ir­lýs­ing en þó nóg til þess að opna dyrnar að frek­ari aðgerðum, sem í kvöld hófust með yfir­lýs­ingu um að hluti Úkraínu sé ekki lengur hluti Úkraínu og þeirri túlkun að her­lið Rússa sé frið­ar­gæslu­lið. Þessi hluti Úkraínu hefur þó verið hlið­hollur þeim for­setum sem hafa verið hallir undir Rússa. Ekki þykir ólík­legt að atburða­rásin muni fylgja sama ferli og á Krím­skaga, þar sem íbúar sam­þykktu á end­anum að ganga inn í Rússland.

Ef úkra­ínski her­inn tekur á móti Rússum er nægt rúss­neskt her­lið fyrir norðan Úkraínu sem getur náð til höf­uð­borg­ar­innar Kiyv. Spurn­ingin er um leið hvar frið­ar­gæslu­lið Pútins mun nema staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Með svipuðum rökun gætu þjóðverjar endurheimt Kaliningrad.
    1
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    Af hverju var verið að fella veldi sovét rikjana .
    Var það ekki vegna þess að Rúsar voru að gefa skít í sovétið og komónisman .

    En lengi lifir í gölum glaðum og er Pútin og bandaríkja forseti þar fremstir í farar broddi og reina eins og rjuppan við staurinn að koma á stríði milli Rússa og BNA hvð sem það kostar .

    Fengu RÚsar ekki nóg þegar fleri mijón nanns voru drepin í seinni heimstirjöldini.
    Er kanski kominn tími á að faekka Rúsum en frekar ?.hver veit

    Held að þetta kjaftaeði um Úkraníju sem er ett mesta forða búr Efvrópu sé ekki ágrenigur um yfirráð ,heldur um hvernig haga skal áframhaldandi vopna framleiðslu sem nú er í laegð vegn vöntunar á stríði .

    Ef Rúsar og Úkrqaníju menn sem" eru nánast braeður og sistur" eru ornir svona frjalsir af hverju ganga þessar þjóðir ekki bara í Evrópusambandið ,og stiðja hvor aðra eftir bestu getu og gera öllum kleift að lifa í friði og spekt .

    Eiga ekki Rúsar ógrini af gasi sem EVrópuskum þjóðum, ansi margra, vetnar sárlega .

    Og eiga ekki Úkraníju menn ógreini af góðu reaktarlandi sem getur fullnaegt mörgum svöngum manninum.

    Hvað er að þegar ekkert er að .

    Er ekki komin timi á að menn haeti að vera í tindádaleik og fari að slíðra vopnin .

    Ekki faeða vopnin sveltandi mannkyn eða hvað .

    Hvað skyldu Rúsar og BNA annars eiða sameigilega í vopnaframleiðslu og hvað vari hagt að faða margar skepnur og menn fyrir þaer mög þúsund biljónir Evra.? SPÁIÐ Í ÞAÐ GOTT FÓLK OG EKKI TALA UM AÐ EINHVER SÉ AÐ EINFALDA HLUTINA ÞETTA ER NEFNILEGA MJÖG EINFALT ,ENDA ERUM VIÐ BARA MENN AÐ MEIRI
    0
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    ,,Fjölmenn mótmæli evrópusinna" í Úkraínu árið 2014 segir hr. Jón Trausti. Nei nei, þessi ,,mótmæli" voru nú eitthvað talsvert meira en bara það:

    https://www. counterpunch. org/2022/02/18/war-in-europe-and-the-rise-of-raw-propaganda/

    Svo er engin launung að hr. Zelensky, Úkraínuforseti, ýjaði að þeirri hugmynd á öryggisráðstefnu í Munchen fyrir stuttu að ríkisstjórn hans væri alveg tilbúinn að skoða þróun kjarnorkuvopna:

    http: //oneworld. press/?module=articles&action=view&id=2499

    En auðvitað er hr. Jón Trausti ekkert að nefna þetta sérstaklega í þessum skrifum sínum. Nei nei, enda eflaust alger óþarfi. Það er fyrir lifandis löngu búið að draga þá línu innan ,,siðaðra" vesturvelda að Rússaveldi sé vont og hr. Putin sé ,,Hitler endurborinn." Já já, já já. Nóg um það. Kv
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár