„Langstærsta tjón“ og dauði í sögu íslensks laxeldis

Laxa­dauð­inn hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish er sögu­legur en á milli 300 og 400 þús­und eld­is­laxar hafa drep­ist. Gísli Jónsson, dýra­læknir, hjá MAST, segir að aldrei áður í sögu þess­arar greinar á Íslandi hafi fleiri laxar drep­ist. Hann segir íslenska vet­ur­inn enn og aftur hafa minnt á sig.

„Langstærsta tjón“ og dauði í sögu íslensks laxeldis

Gísli Jónsson, dýra­læknir fiski­sjúk­dóma hjá MAST, segir að laxa­dauð­inn hjá Arctic Fish í Dýra­firði, sem kom­inn var upp í 3000 tonn sam­kvæmt síð­ustu tölum, sé mesti dauði og tjón sem hefur átt sér stað í sögu íslensks lax­eldis. „Þetta er tals­vert tjón. [...] Ef við bara horfum á umfangið og tjónið í verð­mætum þá er þetta langstærst. Án nokk­urs vafa. Það er bara ekk­ert í lík­ingu við þetta núna,“ segir Gísli en fram­leiðsla íslenskra lax­eld­is­fyr­ir­tækja hefur auk­ist mjög á liðnum árum.

Til að und­ir­strika þetta voru 34 þús­und tonn af óslægðum norskum eld­is­laxi fram­leidd á Íslandi árið 2020 á meðan þau voru rétt rúm­lega 3.200 árið 2015. Því er um að ræða rúm­lega tíföldun í fram­leiðsl­unni á ein­ungis fimm árum. Samhliða þess­ari aukn­ingu getur tjón í fram­leiðsl­unni auk­ist. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • skrifaði
    Þetta er auðvitað galið hvernig farið var hér með nánast alla flóa og firði undir þetta, bara yfir nótt. Ráðinn einhver spilltur, aflóga þingmaður til að hlaupa með leyfispappíra í gegnum ráðuneytin, þar sem gamlir vinir sátu fyrir og gúmmístimpluðu. ömurlegt. og þegar Seyðfirðingar segja "Nei takk ómögulega" þá skal því samt skóhornað ofan í þá með góðu eða illu.
    Ef þetta er ekki upp á landi þar sem hægt er að hafa stjórn á eldinu í sátt við umhverfi og mannlíf þá á ekki að leyfa þetta.
    1
  • ÓY
    Óttar Yngvason skrifaði
    Það er örugglega hægt að bæta við allar þessar tölur frá opinberum aðilum amk
    25-50%. Í Arnarfirði var t.d. sláturskip, sem tók 1200 tonn + slátrun brunnbátanna
    en ekki 775 tonn eins og MAST reynir að falsa. Skástu upplýsingarnar koma í gegnum kauphöllina í Osló, þar sem eigandinn samt reynir að halda sig við lægstu mögulegu tölur. Öll eru tjónin ótryggð eða eiga að vera ótryggð skv. eðlilegum tryggingaskilmálum.
    Ástæða þessarra stórkostlegu tjóna - fyrir utan náttúrutjón, náttúrusóðaskap og dýraníð - er fyrst og fremst ofsetnar kvíar, langt umfram heimildir. Allt of mikill fiskur er settur í kvíarnar í byrjun og því fór sem fór. Hvar er eftirlitið hjá Umhverfisstofnun og MAST?
    Öll þessi ósköp eru að auki á ábyrgð Alþingismanna, sem hafa látið telja sér trú um að sjókvíaeldið sé bjargvættur þeirra byggða, sem eru kvótalausar eftir útreið 40 ára kvótakerfis. Gjafir þjóðarinnar með ókeypis afnotum norskra auðfyrirtækja af Vestfjörðum og Austfjörðum koma því miður aldrei í stað þjóðargjafa kvótans.
    Muna menn ekki Verbúðina?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár