Gagnýnir ráðherra Sjálfstæðisflokksins fyrir tvær dómaraskipanir í Hæstarétt

Aðkoma dóms­mála­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins að skip­unum Ólafs Barkar Þor­valds­sonar og Jóns Steinars Gunn­laugs­sonar í emb­ætti hæsta­rétt­ar­dóm­ara er til umfjöll­unar í nýrri bók um sögu Hæsta­réttar Íslands í hund­rað ár. Hæsti­réttur Íslands gefur bók­ina út en í rit­nefnd hennar sátu meðal ann­ars fyrr­ver­andi dóm­arar við Hæsta­rétt.

Gagnýnir ráðherra Sjálfstæðisflokksins fyrir tvær dómaraskipanir í Hæstarétt
Flokk­ur­inn reyndi að tryggja ítök sín Í nýrri bók um sögu Hæsta­réttar Íslands kemur fram sú sögu­skoðun að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi reynt að tryggja ítök sín og völd í dóms­kerf­inu með tveimur dóm­ara­skip­unum á þeim Ólafi Berki Þor­valds­syni og Jóni Steinari Gunn­laugs­syni. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Tvær skip­anir dóms­mála­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins í  emb­ætti dóm­ara við Hæsta­rétt Íslands eru gagn­rýndar í nýrri bók um sögu rétt­ar­ins í hund­rað ár.

Um er að ræða þá ákvörðun Björns Bjarna­sonar dóms­mála­ráð­herra að skipa Ólaf Börk Þor­valds­son í dóm­ara­emb­ætti árið 2003 ann­ars vegar og hins vegar þá ákvörðun setts dóms­mála­ráð­herra, Geirs H. Haarde, að skipa Jón Steinar Gunn­laugs­son í slíkt emb­ætti árið í 2004. Í bók­inni er rakið hvernig dóms­mála­ráð­herra snið­gekk hæfn­is­mat Hæsta­réttar Íslands í bæði skiptin en í þessum tveimur til­fellum taldi rétt­ur­inn að hæf­ari umsækj­endur hefðu sótt um starfið. Dómarar við Hæsta­rétt Íslands voru ráð­gef­andi við skipun í þessi tvö emb­ætti. 

Bókin heitir Hæsti­réttur í hund­rað ár og er höf­und­ur­inn Arnþór Gunn­ars­son sagn­fræð­ingur. Hæsti­réttur Íslands kostar og stendur að útgáfu bók­ar­innar en útgef­and­inn er Hið íslenska bók­mennta­fé­lag. Í inn­gangi bók­ar­innar rekur for­seti Hæsta­réttar Íslands, Benedikt Bogason, hvernig þrír aðrir sagn­fræð­ingar voru skip­aðir í ráð­gjaf­ar­hóp til að tryggja sjálf­stæði Arnþórs við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Sjálfstæðisflokkurin minnir ekki á skipulögð glæpasamtök heldur er hann glæpasamtök.
    -2
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    "Niðurstaðan varð því faglegri og minna flokkspólitísk umgjörð um íslenska dómskerfið." Nei, ekki alveg. Sjallar héldu uppteknum hætti við Landsrétt.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár