Örlög jaðarsettra Íslendinga: „Maður finnur nánast fyrir líkamlegu ógeði“

Sex sagn­fræð­ingar hafa gefið út bók með heim­ildum um jað­ar­setta Íslend­inga á öldum áður. Um er að ræða lýs­ingar á lífs­hlaupi fólks sem var á ein­hvern hátt fatlað, and­lega eða lík­am­lega, og lenti jafn­vel í ein­elti og stríðni. Tveir af sagn­fræð­ing­unum, Sigurður Gylfi Magn­ús­son og Sólveig Ólafs­dóttir, segja að með auk­inni og bættri með­vit­und um fatlað fólk og stofn­ana­væð­ingu sam­fé­lags­ins hafi jað­ar­sett fólk fengið meira skjól en á fyrri öldum.

Örlög jaðarsettra Íslendinga: „Maður finnur nánast fyrir líkamlegu ógeði“

„Voru þær leiddar að bæli hennar, og þótt skömm sé frá því að segja, gátu sumar þeirra ekki látið kerl­ing­ar­vesl­ing­inn óáreittan, heldur fóru að yrða á hana og jafn­vel erta hana. Hafði hún ekki svarað með öðru heldur en orgi.“

Þessi lýs­ing er meðal þeirra sem til eru um lífs­hlaup Sól­veigar Eiríks­dóttur, konu frá Eyja­firði á Norð­ur­landi, sem lést árið 1868. Sólveig þessi var sein­fær ein­stæð­ingur og utan­garðs­kona sem var á hreppnum í sinni sveit og var höfð þar að háði og spotti. Síðustu ár ævi sinnar lá hún í kör á bænum Öng­uls­stöðum og kom fólk í ein­hverjum til­fellum til að sjá hana, líkt og hún væri ein­hvers konar frík eða fyr­ir­bæri.  

Bók um jað­ar­sett og fátækt fólkBókin fjallar um jað­ar­sett og fátækt fólk á Íslandi á fyrri öldum og allt fram á fyrri hluta þeirrar tutt­ug­ustu. Sagn­fræð­ing­arnir Sigurður Gylfi Magn­ús­son og Sólveig …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár