Ríkisframlög grundvöllur hundraða milljóna hagnaðar stjórnmálaflokka

Stjórn­mála­flokkar sem fá úthlutað pen­ingum úr rík­is­sjóði högn­uð­ust um hund­ruð millj­óna árið 2020 fyrst og fremst vegna fram­laga úr rík­is­sjóði. Flokks­starf er aðeins að litlu leyti fjár­magnað af félags­fólki eða með styrkjum fyr­ir­tækja og ein­stak­linga.

Ríkisframlög grundvöllur hundraða milljóna hagnaðar stjórnmálaflokka
Tekju­stofn­anir Myndin sýnir hvernig pen­ingar streyma frá fjórum helstu tekju­stofnum stjórn­mála­flokk­anna og hversu stór hluti tekna fer í rekstur og hvað verður eftir sem hagn­aður. Um helm­ingur flokk­anna hafa tekjur af annarri stars­femi en í gegnum styrki en þær tekjur, sem eru óveru­legar, eru ekki sýndar á þess­ari mynd. Mynd: Stundin / JIS

Mörg hund­ruð millj­óna króna sam­an­lagður hagn­aður stjórn­mála­flokka sem fá greiðslur sam­kvæmt fjár­lögum er að mestu til­kom­inn vegna lög­bund­ins fram­lags rík­is­ins. Þetta má lesa út úr árs­reikn­ingum flokk­anna sem um ræðir fyrir árið 2020. Árs­reikn­ing­arnir hafa verið birtir í heild sinni á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar, sem hefur eft­ir­lit með fjár­mögnun stjórn­mála­starf­semi á Íslandi. Flokk­arnir átta sem voru á fjár­lögum árið 2020 fengu sam­tals 831,5 millj­ónir frá rík­inu. Þeir skil­uðu 305 millj­óna króna hagn­aði sama ár. 

Flokk­arnir sem um ræðir eru Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn, Fram­sókn­ar­flokkur, Sam­fylk­ing, Píratar, Viðreisn, Mið­flokkur og Flokkur fólks­ins. Flokk­arnir fá úthlutað eftir kjör­fylgi í síð­ast­liðnum þing­kosn­ingum. Úthlutun árs­ins 2020 og 2021 er sam­kvæmt nið­ur­stöðum þing­kosn­ing­anna 2017. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem fékk mest fylgi í þeim kosn­ingum, fékk því mest af pen­ingum frá rík­inu. Flokk­ur­inn fékk árið 2020 rúmar 195 millj­ónir króna. Vinstri gæn, sá næst­stærsti, fékk 134 millj­ónir og Sam­fylk­ing 103 millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Þórhallsdóttir skrifaði
    Það hlýtur að þurfa að vinda ofan af þessu rugli.
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Ótrúlegt, þetta samsukk. Þarna er engin stjórnarandstaða.
    0
  • SorryStina en ég hef bara engar skoðanir á stjórnmálum þetta virðist allt vera hvað öðru likt
    0
  • Reynir Eggertsson skrifaði
    Hvað gerist þegar Miðflokkurinn hættir að vera til, eftir næstu þingkosningar t.d. - hvað verður þá um eftirstöðvarnar; fara þær beint á Tortólureikning foringjans?
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Einhverjir horfa á eins og tilfinningasljóir kettir sem horfa á sjónvarpið en sjá ekki neitt.Þó slík fyrirbæri séu ekki til í náttúrunni
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Og til er elíta sem haldið uppi af skattborgurum og misnotar ríkisvaldið á almenna borgara. Hvað var kúlulánadrottningin að tala um 2 vikur?
    0
  • BH
    Bjarki Hilmarsson skrifaði
    Án þessa 'hagnaðar' væri Sjálfstæðisflokkurinn sennilega eini flokkurinn sem hefði fjármagn til að reka alvöru kosningabaráttu.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Hagnaður? heitir þetta ekki sjálftaka?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár