Bogi óskaði eftir að viðtal Sölva við sig yrði ekki birt

Sölvi Tryggva­son hefur sett nýja hlað­varps­síðu í loftið eftir að hafa tekið niður alla hlað­varps­þætti sína í kjöl­far ásak­ana um kyn­ferð­is­brot. Sölvi hafði tekið við­tal við Boga Ágústs­son áður en ásak­an­irnar komu í fram í dags­ljósið. Bogi fór fram á að við­talið yrði ekki birt.

Bogi óskaði eftir að viðtal Sölva við sig yrði ekki birt
Mættur á ný Sölvi Tryggva­son hefur sett nýja hlað­varps­síðu í loftið þar sem hægt er að nálg­ast eldri við­töl hans og jafn­framt boðar hann nýtt efni. Hlað­varps­við­töl Sölva voru tekin úr birt­ingu í maí eftir að hann var sak­aður um kyn­ferðis- og ofbeld­is­brot.

Bogi Ágústs­son, frétt­maður á Rík­is­út­varp­inu, fór fram á að við­tal sem Sölvi Tryggva­son tók við hann í apríl síð­ast­liðnum yrði ekki birt á hlað­varps­síðu Sölva. Hlaðvarp Sölva var tekið niður í maí á þessu ári eftir að Sölvi var ásak­aður um að hafa brotið kyn­ferð­is­lega gegn tveimur konum. Sölvi hefur nú sett hlað­varps­síðu sína aftur í loftið.

Í byrjun maí síð­ast­lið­ins sendi lög­mað­ur­inn Kristrún Elsa Harð­ar­dóttir út yfir­lýs­ingu þar sem fram kom að tvær konur hefðu leitað til lög­reglu vegna ofbeldis sem þær segðu Sölva hafa beitt sig. Önnur konan kærði Sölva fyrir lík­ams­árás sem átt hefði sér stað á heim­ili hennar 14. mars síð­ast­lið­inn. Samkvæmt yfir­lýs­ing­unni kom lög­regla á vett­vang og færði Sölva á lög­reglu­stöð þar sem tekin var skýrsla af honum. Hin konan kvaðst hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­broti af hálfu Sölva á heim­ili hans 22. júní árið 2020. Málin munu bæði enn vera til skoð­unar hjá lög­reglu.

Ýtti af stað nýrri #metoo bylgju

Umræða hafði haf­ist um meint ofbeldi Sölva skömmu áður á sam­fé­lags­miðlum. Sölvi brást við með því að ræða um orðróm þar um í eigin hlað­varps­þætti þar sem hann ræddi við lög­mann sinn, Sögu Ýrr Jóns­dóttur. Bar Sölvi þar grát­andi af sér allar sakir. Saga Ýrr sagði sig síðar frá máli Sölva og sagði við það tæki­færi að hún hefði aldrei átt að taka þátt í umræddum hlað­varps­þætti.

Segja má að frétta­flutn­ingur af mál­inu hafi ýtt úr vör nýrri bylgju af #metoo málum en fjöldi kvenna greindi í kjöl­farið frá því að þær hefðu verið beittar kyn­ferð­is­legu ofbeldi og áreiti, lík­am­legu og and­legu ofbeldi.

„Ég veit ekki betur en það við­tal verði ekki birt“
Bogi Ágústs­son

Í kjöl­far þess að yfir­lýs­ing lög­manns kvenn­ana var send út tók Sölvi niður alla hlað­varps­þætti sína sem verið höfðu í birt­ingu. Hann hefur nú hins vegar opnað nýja hlað­varps­síðu þar sem hægt er að nálg­ast þætt­ina, yfir eitt hund­rað tals­ins, og boðar að þar muni birt­ast þrír til fjórir nýjir þættir á mán­uði. Greiða þarf fyrir aðgang að síð­unni og er verðið 990 krónur á mán­uði.

Í frétt Vísis af hlað­varpi Sölva, sem birt var í gær, var greint frá því að meðal vænt­an­legra við­mæl­enda Sölva væru Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son stjórn­mála­fræð­ingur, tón­list­ar­mað­ur­inn Krummi í Mínus, Hermann Hreið­ars­son knatt­spyrnu­kappi og Bogi Ágústs­son frétta­maður. Á sam­fél­ga­smiðlum varð í kjöl­farið umræða um málið þar sem fólk lýsti miklum von­brigðum með að Sölvi hefði hafið hlað­varps­gerð sína á nýjan leik. Einkum virt­ist það valda fólki von­brigðum að Bogi væri meðal við­mæl­enda.

Viðtalið við Boga er hins vegar gam­alt, tekið áður en ásak­anir á hendur Sölva komu fram í kast­ljósið. „Það er rétt, hann tók við mig við­tal í apríl en við ræddum um að það yrði ekki sent út,“ segir Bogi í sam­tali við Stundina. „Ég veit ekki betur en það við­tal verði ekki birt. Ég óskaði eftir því og það varð að sam­komu­lagi milli okkar Sölva að það yrði ekki birt núna.“

Vildi ekki að við­talið færi í loftiðBogi segir að hann hafi óskað eftir því við Sölva að við­tal við sig yrði ekki birt.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MRG
    Margrét Rún Guðmundsdóttir-Kraus skrifaði
    https://stundin.is/grein/14540/ef-konur-vaeru-karlar/
    0
  • BÁH
    Brynjar Á Hilmarsson skrifaði
    merkilegt að það eru eingar sannanir til að hægt sé að áskæra Sölva
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    "að það yrði ekki birt núna"
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár