Alls konar subbulegt en annað hugljúft og fallegt

Bragi Valdimar segir að útgef­and­inn hafi dregið ljóðin í Jóðl upp úr honum með log­andi töngum.

Bók

Jóðl

Höfundur Bragi Valdimar Skúlason
Bjartur
160 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Jóðl er bók sem er búin að vera ansi lengi í smíðum ef allt er til­tekið, segir Bragi Valdimar Skúlason. „Þetta eru kvæði, ljóð, textar, vísur, alls konar bull og fjör og skemmti­leg­heit og alvar­leg­heit og allt þar á milli sem hafa safn­ast upp hjá mér í örugg­lega tutt­ugu og fimm ár, jafn­vel lengur. Elsta stöffið er frá því ein­hvern tím­ann í síð­mennta­skóla og nýjasta er frá því í síð­ustu viku. Þannig að þetta er alls konar og ég verð bara að standa við þetta. Það er ýmis­legt subbu­legt en líka alls konar fal­legt og hug­ljúft. Það eru jarð­ar­far­ar­hitt­arar þarna og ein­hverjar vessa­vísur og alls konar fjör.“

Spéhræddur við að setja texta á prent

„Þessi bók kom eig­in­lega þannig til að Páll Valsson hjá Bjarti dró hana upp úr mér með log­andi töngum. Hann var búinn að ganga á eftir mér í dálít­inn tíma að koma þessu á prent. Af því að ég hef verið að gera laga­texta og ég var svo­lítið spé­hræddur við að vera að setja þá á prent svona eina og sér, svona lag­lausa. Mér fannst skrítið að vera að setja eitt­hvað sem er spunnið lag og þá er ég ekk­ert að vanda mig í stuðlum og höf­uð­stöfum. En þetta fékk allt að fljóta með, eða sumt, og ég er bara nokkuð ánægður með þetta. Þetta er bara að spjara sig ágæt­lega þarna. 

Ég sest mjög sjaldan niður: Nú ætla ég að skrifa ljóð. Það ger­ist eig­in­lega aldrei. Þetta er meira byggt á tíma­pressu, dea­d­line, og svo eig­in­lega bara leiða. Þegar mér leið­ist þá finnst mér voða gaman að skrifa inn í sím­ann minn. Það er lít­ill pappír sem kemur þarna nálægt. Þannig að ég set mig voða sjaldan í ein­hverjar stell­ingar. Þetta bara bun­ast ein­hvern veg­inn út, svo er bara að vona það besta.“

Þykir vænt um bókina

„Mér líður nokkuð vel með þessa bók. Mér þykir eig­in­lega svo­lítið vænt um hana. Þetta er eig­in­lega fyrsta, hvað á ég að segja, varan sem ég þarf einn og sjálfur að standa með. Yfir­leitt er ég með her af tón­list­ar­fólki í kringum mig eða með­höf­undum eða öðru sem passar upp á mig. En ég þarf bara gjöra svo vel að skrifa undir þetta og standa og falla með þessu. Þannig að ég er bara nokkuð ánægður með þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2021

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hugleiðslu
ViðtalAllir fuglar fljúga í ljósið

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hug­leiðslu

Í bók­inni Allir fuglar fljúga í ljósið riðl­ast til­vera ráfar­ans Bjartar og lífs­saga hennar brýst fram. Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur og skap­ari sög­unnar segir að þegar hún ljúki við að skrifa bók líði henni oft eins og hún sé að ranka við sér eftir langa og djúpa hug­leiðslu. „Þetta er eins og að hafa farið mjög djúpt inn í draum nema núna er draum­ur­inn kom­inn á prent og fólk er að fara að lesa hann,“ segir Auður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár