„Ísland er nýja bardagasvæðið fyrir laxeldisiðnaðinn“

Í nýrri bók tveggja norskra blaða­manna er meðal ann­ars fjallað um lax­eldi á Íslandi og það hvernig lax­eld­is­fyr­ir­tæki í Noregi hafa þurft að færa sig til nýrra landa eftir nýjum haf­svæðum. Höf­und­arnir rekja hvernig finna þurfi leiðir til að stunda lax­eldi í sátt við sam­fé­lagið.

„Ísland er nýja bardagasvæðið fyrir laxeldisiðnaðinn“
Saga lax­eld­is­ins og tengslin við Ísland Simen Sætre og Kjetil Östli, sem eru norskir blaða­menn, hafa skrifað bók um sögu lax­eldis sem iðn­greinar. Þar ræða þeir meðal ann­ars um hvernig norsk lax­eld­is­fyr­ir­tæki hafa farið til ann­arra landa eins og Íslands og Síle til að stunda lax­eldi.

„Norsk lax­eld­is­fyr­ir­tæki leita stöðugt eftir nýjum stöðum til að stunda lax­eldi á. Þau hafa farið lengra norður í Noregi og svo til ann­arra landa eins og til Síle og Íslands,“ segir Norð­mað­ur­inn Simen Sætre, sem er blaða­maður og annar af höf­undum nýrrar bókar um lax­eldi sem komin er út í Noregi. Bókin heitir Den Nye Fisken: Om temm­ingen av lak­sen och alt det for­und­erlige som fulgte.  Hinn höf­und­ur­inn heitir Kjetil Östli og er einnig blaða­maður. „Ísland er nýja bar­daga­svæðið fyrir lax­eld­is­iðn­að­inn,“ segir Simen: „Landið markar nýju landa­mærin í grein­inni, það er eitt af lönd­unum sem iðn­að­ur­inn hefur flutt til, með sama hætti og Síle á sínum tíma.“ 

Um er að ræða að minnsta kosti aðra af tveimur bókum um lax­eld­isæv­in­týri Norð­manna sem komið hafa út á liðnum árum. Hin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SVS
    Stefán Valdemar Snævarr skrifaði
    Mjög athyglisvert. Þessir blaðamenn skrifuðu athyglisverða grein í Aftenposten um daginn. Við má bæta að ríkisstjórn Solbergs dansaði eftir pípu laxeldisfyrirtækja, sagt er að fyrirtækin og jafnvel sjávarútvegsráðherra hafi reynt að hafa áhrif á niðurstöður rannsókna á fiskeldi (samkvæmt greinaflokki í Morgenbladet).
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Tekjur Arnarlax lækkuðu um 39 prósent á milli ára – Eigið fé metið á 17 milljarða króna
InnlentLaxeldi

Tekjur Arnarlax lækk­uðu um 39 pró­sent á milli ára – Eigið fé metið á 17 millj­arða króna

Arnarlax hefur nú birt afkomu­upp­lýs­ingar sínar frá 2024 en þar má sjá að afkoman er mun verri en árið 2023. Mikill laxa­dauði vegna lúsa­fárs árið 2023 hafði þar mikil áhrif. BB.is segir frá því að tekjur Arnarlax á síð­asta ári hafi verið 39 pró­sent minni en árið áður eða um 9 millj­örðum lægri. Tekj­urnar 2024 urðu um 15 millj­arðar króna...
Steinunn Ólína orti tækifærisgaldur gegn laxeldi fyrir norðan: „Ratið út villusauðir!“
Menning

Steinunn Ólína orti tæki­fær­is­galdur gegn lax­eldi fyrir norðan: „Ratið út villu­sauðir!“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir orti tæki­fær­is­galdur gegn áformum um upp­setn­ingu eld­is­stöðva á Norð­ur­landi, og birti á Facebook. Leik­konan og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­and­inn Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir birti í morgun magn­þrungna vísu eða tæki­fær­is­galdur eins og hún orðað það. Þar mót­mælir hún eld­is­stöðvum sem setja á upp víða á Norð­ur­landi með til­heyr­andi mengun og raski. Hefst færsla hennar á eft­ir­far­andi hátt: „Nú er horfið...
Sir Jim Ratcliffe framleiðir gin til verndar villta laxinum
Landið

Sir Jim Ratcliffe fram­leiðir gin til verndar villta lax­inum

Sir Jim Ratcliffe og sam­tök hans, Six Rivers munu á næst­unni fram­leiða sér­stakt gin í sam­starfi við sænskan gin­fram­leið­anda. Hluti sölu­hagn­að­ar­ins mun renna til verndar villta Atl­ants­haf­s­lax­inum. Samkvæmt heima­síðu Six Rivers segir um Íslands­deild sam­tak­anna: „Six Rivers Iceland er vernd­ar­á­ætlun sem er ekki rekin í hagn­að­ar­skyni, sem leit­ast við að snúa við hnignun Atl­ants­haf­s­laxa.“ Það er í því ljósi sem...

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár