Jón Baldvin sýknaður

Ósannað þótti í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur að Jón Baldvin Hanni­bals­son hefði gerst sekur um kyn­ferð­is­lega áreitni.

Jón Baldvin sýknaður
Sýknaður af kyn­ferð­is­legri áreitni Ekki þótti sannað að Jón Baldvin hefði brotið af sér. Mynd: pressphotos.biz

Jón Baldvin Hanni­bals­son var í morgun sýkn­aður af ákæru um að hafa áreitt konu kyn­ferð­is­lega í heim­ili sínu í Salobreña á Spáni í júni árið 2018. Í dóms­orði var sagt að ósannað teld­ist að Jón Baldvin hefði áreitt kon­una. Litið var til þess að helstu vitni í mál­inu voru ann­ars vegar eig­in­kona Jóns Baldvins og hins vegar móðir kon­unnar, Carmenar Jóhanns­dóttur,  sem Jóni Baldvini var gefið að sök að hafa áreitt. Þá var vitn­is­burður móð­ur­innar sagður óstöð­ugur og um sumt í ósam­ræmi við vitn­is­burð Carmenar.

Jóni Baldvini var gefið að sök að hafa laug­ar­dag­inn 16. júní strokið rass Carmenar utan­klæða þar sem hún var gest­kom­andi á heim­ili hans í Salobreña ásamt móður sinni og fleira fólki. Greindi Stundin í upp­hafi árs 2019 frá fram­burði hennar og fleiri kvenna um kyn­ferð­is­lega áreitni. Gefin var út ákæra í mál­inu í sept­em­ber á síð­asta ári. Hér­aðs­dómur vís­aði mál­inu á hendur Jóni Baldvini hins vegar frá í upp­hafi árs en Lands­réttur felldi úr gildi frá­vís­unar­úr­skurð­inn í mars síð­ast­liðnum.

Carmen var gest­kom­andi á heim­ili Jóns Baldvins og Bryn­dísar Schram, eig­in­konu hans, í júní 2018 ásamt móður sinni, Laufeyju Ósk Arn­órs­dóttur. Carmen lýsti því í við­tal­inu í Stund­inni að þegar hún hafi staðið upp við mat­ar­borð í hús­inu og skenkt í glös á borð­inu, „þá bara gerði kall­inn sér lítið fyrir og byrj­aði að strjúka á mér rass­inn. Og ekk­ert bara rétt aðeins, heldur upp og niður strjúka á mér rass­inn.“

Laufey móðir hennar stað­festir að hafa séð káf Jóns Baldvins og bar hún það upp á hann við mat­ar­borðið. Jón Baldvin harð­neit­aði að hafa gert nokkuð af sér og kom til orða­skaks þeirra á milli. Þær mæðgur stóðu upp og yfir­gáfu heim­ili þeirra hjóna með það. Bryndís sendi Laufeyju síðan tölvu­póst um nótt­ina með yfir­skrift­inni Fyr­ir­gefn­ing. „Laufey. Kl. 03: Það er nið­dimm nótt. Ég get ekki sofið – and­vaka, nið­ur­brotin. Jón Baldvin liggur í rúm­inu við hlið­ina á mér, sof­andi svefni hinna rétt­látu – eins og barn. Hann skilur ekki enn, að hann hafi brotið af sér,“ segir í upp­hafi pósts­ins.

Í dóms­orði segir að litið sé til tengsla vitn­anna Bryn­dísar Schram og Lauf­eyjar Óskar Arn­órs­dóttur við ann­ars vegar Jón Baldvin og hins vegar Carmen, en þau tengsl dragi úr vægi vitn­is­burðar þeirra sem óvil­hallra. Þá segir að vitn­is­burður Lauf­eyjar hafi verið óstöð­ugur í mál­inu og á stundum í ósam­ræmi við vitn­is­burð Carmenar sjálfrar. Jón Baldvin var því sýkn­aður og allur máls­kostn­aður greiddur af rík­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

MeToo sögur um Jón Baldvin

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögnina
Fréttir

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögn­ina

„Ég er stolt af því að hafa rofið þögn­ina með því að koma dag­bók mömmu á fram­færi sem og bréf­inu sem Jón Baldvin Hanni­bals­son sendi henni,“ segir Val­gerður Þor­steins­dóttir, dóttir Þóru Hreins­dóttur en Stundin fjall­aði um bréfið og dag­bók­ina á dög­unum. Pabbi Val­gerðar sem var í sam­búð með Þóru fyrir um fjöru­tíu árum, eig­in­kona hans og systir Val­gerðar segja að frið­helgi einka­lífs Þóru sé rofin og van­virt.
Þegar konur eru stimplaðar geðveikar
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Leiðari

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Þegar konur eru stimpl­aðar geð­veikar

„Þetta á ekk­ert erindi við almenn­ing, frekar en geð­veiki dóttur minnar,“ voru við­brögð Jóns Baldvins við birt­ingu bréfa sem hann skrif­aði til ungrar stúlku í fjöl­skyld­unni. Í til­raun til að varpa athygl­inni frá sér benti hann á dóttur sína, sem svar­aði fyrir sig og var fyrir vikið dregin fyrir dóm af föður sínum. „Ég gat ekki sætt mig við að vera útmáluð geð­veik.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár