Einn ríkasti maður Noregs hefur samstarf í laxeldi við eiganda Arnarlax

Kjell Inge Røkke, einn rík­asti maður Noregs sem einkum hefur efn­ast á olíu­vinnslu, hefur tekið upp sam­starf við lax­eld­is­ris­ann Salmar, eig­anda Arnarlax á Bíldudal. Á meðan bíður Salmar eftir því hvort félagið fær að kaupa eig­anda Arctic Fish á Ísafirði og verða nær einrátt í íslensku lax­eldi. Røkke og Salmar ætla að veðja saman á aflandseldi á laxi en hér á landi stundar Arnarlax sjó­kvía­eldi í fjörðum Vest­fjarða.

Einn ríkasti maður Noregs hefur samstarf í laxeldi við eiganda Arnarlax
Stór­frétt í Noregi

Kjell Inge Røkke, sem er einn rík­asti og þekkt­asti kaup­sýslu­maður Noregs, hefur hafið sam­starf við lax­eld­is­fyr­ir­tækið Salmar, eig­anda Arnarlax á Bíldudal. Þetta er í fyrsta skipti sem Røkke fjár­festir í lax­eldi en hann hefur hingað til ekki haft trú á þessum iðn­aði. Hann við­ur­kennir nú að hann hafi haft rangt fyrir sér um lax­eldi en fyr­ir­tæki eins og Salmar hafa skilað hlut­höfum þess gríð­ar­legum hagn­aði í gegnum árin. 

Um þetta segir Røkke: ,,Ég hélt að lax­eld­is­iðn­að­ur­inn myndi lenda í meiri mót­vindi þegar þessi iðn­aður var að hefj­ast; að smá­sölu­versl­anir, sem eru kannski bestu inn­kaups­að­ilar í heimi, myndu ekki heim­ila stór­kost­legan hagnað í grein­inni. En svo sá ég vöxt­inn í lax­eld­inu og þegar ég horfi til þess hvað þessi grein hefur stækkað til allra heims­horna og hvað hún orðið stendur sterk þá verð ég bara að við­ur­kenna þetta: Ég hafði rangt fyrir mér. " 

,,Ég hafði rangt fyrir mér "

Greint er frá þessu sam­starfi í til­kynn­ingu til norsku kaup­hall­ar­innar í dag sem og í norskum fjöl­miðlum.

Frétt sem er ,,bomba" 

Norskir fjöl­miðlar spara ekki stóru orðin og tala um sam­vinn­una sem stór­frétt eins og sést á orða­lag­inu í frétt Dagens Nær­ingsliv um málið: ,,Þeirri frétt sló niður eins og bombu þegar það varð ljóst á fimmtu­dags­morgun að tveir af rík­ustu mönnum lands­ins, laxa­millj­arða­mær­ing­ur­inn Gustav Witzøe og útgerð­ar­mað­ur­inn, iðju­höld­ur­inn og olíu­millj­arða­mær­ing­ur­inn, Kjell Inge Røkke, hafa tekið upp sam­starf um að reka aflandseldi á eldi."

Røkke fjár­festir fyrir 1,65 millj­arða norskra króna, 23,6 millj­arða íslenskra króna í sam­eig­in­legu fyr­ir­tæki fjár­fest­ing­ar­fé­lags hans, Akker, og Salmar. Þetta fyr­ir­tæki heitir Salmar Aker Ocean. 

Arnarlax vill stóra­auka sjóa­kvía­eldi í fjörðumÁ sama tíma og Salmar telur aflandseldi vera fram­tíð­ina vill Arnarlax, þar sem Kjartan Ólafsson er stjórn­ar­for­maður, stór­auka sjó­kvía­eldi í fjörðum lands­ins.

Samvinna um nýja tíma í laxeldi

Um er að ræða sam­vinnu sem byggir á nýjum tækni­lausnum í lax­eldi þar sem eldið verður fært út á rúm­sjó í geysistórum úthafs­kvíum, mann­virkjum sem líkj­ast olíu­borpöllum, langt frá landi. Með þessum lausnum telja lax­eld­is­fyr­ir­tækin að lax­eldi fram­tíð­ar­innar verði umhverf­is­vænna en það lax­eldi sem hingað til hefur verið stundað í sjó, aðal­lega eldi í sjó­kvíum sem eru stað­settar nær landi. 

Það er slíkt sjóa­kvía­eldi sem Salmar stundar hér á landi í gegnum Arnarlax, og mögu­lega einnig bráð­lega í gegnum Arctic Fish ef svo fer að fyr­ir­tækið fái að kaupa norskan eig­anda Arctic Fish, Norway Royal Salmon. Salmar hefur lagt fram til­boð í Norway Royal Salmon og er lík­legt að því verði tekið. 

Salmar verður því lík­lega ekki bara stærsti, heldur langstærsti, hags­mun­að­il­inn í íslensku lax­eldi um kom­andi ár og mun því eiga mestan þátt í að byggja upp sjó­kvía­eldi í fjörðum lands­ins. Samhliða þessu telur Salmar að þess konar lax­eldi sé lax­eldi for­tíð­ar­innar og vinnur að því að finna umhverf­is­vænni lausnir til fram­tíðar. Salmar mun því stunda sjó­kvía­eldi í fjörðum Íslands en aflandseldi í fyr­ir­tæk­inu sem félagið stofnar með Røkke. 

Nýir tímar í laxeldi

Gustav Witzøe, for­stjóri Salmar, segir í til­kynn­ing­unni til norsku kaup­hall­ar­innar að sam­starfið sé hluti af ákveðnum tíma­mótum í lax­eld­is­grein­inni. ,,Fjár­fest­ing Salmar í aflandseldi mark­aði upp­hafið að nýjum tíma í fisk­eldi. Við erum mjög glaðir að hefja þetta sam­starf með sterku fyr­ir­tæki eins og Aker. Saman munum við leiða þessa þróun og tryggja sjálf­bæran vöxt út frá for­sendum laxs­ins. Við ætlum að nýta okkur mögu­leika sjáv­ar­ins til að fram­leiða hollan mat, nota staf­ræna og umhverf­is­væna tækni og tryggja, ásamt sam­starfs­að­ilum okkar sem koma fisknum á markað, mat­ar­fram­leiðslu sem er sjálf­bær til fram­tíðar. Saman getum við tekið næsta tækni­skrefið í fisk­eldi í sjó og metn­aður okkar er hnatt­rænn."

For­stjóri Aker, Øyvind Eriksen, tekur í svip­aðan streng þegar hann segir um þetta. ,,Lax­eld­is­iðn­að­ur­inn stendur frammi fyrir nýjum og sjálf­bær­ari tímum og hefur opnað á að taka í notkum nýjan auð­linda­grunn með grænni fram­leiðslu [...] Við trúum því að saman getum við tekið næsta skref í þróun fisk­eldis í sjó, með því að að nota ákveðna tækni og sam­eig­in­lega hæfi­leika okkar til að standa vörð um hafið, vel­ferð fiska og stuðla að sjálf­bærum vexti." 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár