Formaður Fjölskylduhjálpar hluti af tekjuhæsta 1 prósentinu

Ásgerður Jóna Flosa­dóttir, for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands, segir ástæð­una fyrir því að hún er hluti af tekju­hæsta 1 pró­senti lands­manna vera að hún seldi íbúð og sé með góð laun fyrir mik­il­væga vinnu.

Formaður Fjölskylduhjálpar hluti af tekjuhæsta 1 prósentinu
Meðal launa­hæstu Íslend­ing­ana Ef horft er fram­hjá því að Ásgerður Jóna Flosa­dóttir, for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar, var með tæpar sjö millj­ónir króna í fjár­magnstekjur fyrir síð­asta ár, væri hún enn ein af launa­hæstu Íslend­ing­unum. Mynd: Árni Sæberg / MBL

Ásgerður Jóna Flosa­dóttir, for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar og vara­borg­ar­full­trúi fyrir Flokk fólks­ins, var með sam­tals 32 millj­ónir króna í tekjur á síð­asta ári og þar með að með­al­tali 2,7 millj­ónir króna á mán­uði að með­töldum fjár­magnstekjum. Ef aðeins er horft til launa­tekna hennar eru þær 2,1 milljón króna á mán­uði. 

Ástæðu þess að hún rataði á lista segir hún vera vegna þess að hún seldi íbúð sem hún hafði verið að leigja út á AirBnb og vegna þess að hún hafi góðar tekjur bæði sem for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar og vara­borg­ar­full­trúi.

„Ég fæ um 700 þús­und á mán­uði fyrir að vera for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar og svo er vara­borg­ar­full­trúa­staðan vel greidd. Ég ber nátt­úru­lega ábyrgð á því að fleiri þús­und manns fái að borða þegar við erum með úthlut­anir fyrir Fjöl­skyldu­hjálp­ina,“ segir hún.

Auk þess að hafa rúm­lega tvær millj­ónir króna á mán­uði í launa­tekjur hagn­að­ist hún einnig um tæp­lega 7 millj­ónir í fjár­magnstekjum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Tekjulistinn 2021

Samtöl við skattakónga
ViðtalTekjulistinn 2021

Samtöl við skatta­kónga

Þau sem eru hluti af 1 pró­sent tekju­hæstu Íslend­ing­unum sam­kvæmt álagn­inga­skrá eiga margar og mis­mun­andi sögur að baki, bæði af sigrum og sorgum. Stundin ræðir við nokkur þeirra. „Svo þegar ég er búinn að eign­ast alla þessa pen­inga núna þá kann ég ekk­ert að nota þá,“ segir næst­hæsti skatt­greið­andi á land­inu. „Það má and­skot­inn vita hvað verður gert við þetta,“ segir skatta­kóngur að vestan.
Reykvísk fjölskylda hagnaðist um 2,5 milljarða á tæknilausnum í baráttunni við Covid-19
FréttirTekjulistinn 2021

Reykvísk fjöl­skylda hagn­að­ist um 2,5 millj­arða á tækni­lausnum í bar­átt­unni við Covid-19

Inga Dóra Sig­urð­ar­dóttir er skatta­drottn­ing Íslands. Hún hagn­að­ist um tæpa tvo millj­arða á sölu á hluta­bréfum í danska fyr­ir­tæk­inu ChemoMetec, ásamt eig­in­manni sínum, Berki Arn­við­ar­syni. Synir hennar tveir högn­uð­ust báðir um tæpar 250 millj­ónir króna og eru á lista yfir 50 tekju­hæstu Íslend­ing­ana árið 2020.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár