Annmarkar skattaskránna: Stærsti hluti auðsöfnunar á Íslandi er falinn inni í félögum

Sam­an­burður á skráðum árs­tekjum þekkts eigna­fólks og þeirrar eigna­mynd­unar sem á sér stað inni í eign­ar­halds­fé­lögum þeirra sýnir hvað tekju­upp­lýs­ingar segja litla sögu um eigna­myndun.

Annmarkar skattaskránna: Stærsti hluti auðsöfnunar á Íslandi er falinn inni í félögum
Tekjur pínu­lít­ill hluti af eigna­söfn­un­inni Þor­steinn Már Bald­vins­son var með meira en 130 millj­ónir króna í tekjur í fyrra. Þessar upp­hæðir skipta hins vegar litlu máli í sam­an­burði við eigna­söfn­un­ina í eign­ar­halds­fé­lagi hans.

,,Þetta gefur í raun­inni kol­ranga mynd. Síð­ast­lið­inn ára­tug eða svo hefur í raun­inni stór hluti af eigna- og tekju­mynd­un­inni er falin inni í eign­ar­halds­fé­lögum. Það sem kemur fram á skatta­skýrsl­unum er svo bara það sem fólki hefur þókn­ast að greiða sér í laun. Þannig að eign­irnar safn­ast upp í eign­ar­halds­fé­lögum," segir Indriði Þor­láks­son, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, þegar hann er spurður um ann­mark­ana á því að horfa á þær upp­lýs­ingar sem koma fram í skatta­skránum ár. 

Skatta­skrárnar veita því á engan hátt fulla mynd af eigna- og auð­söfnun fólks heldur fyrst og síð­ast upp­lýs­ingar um tekjur og laun sem ein­stak­lingar fá, annað hvort frá vinnu­veit­anda sínum eða í vas­ann út úr fyr­ir­tækjum sem þeir eiga. 

Stóru upphæðirnar eru í félögunum

Eitt af því sem upp­lýs­ing­arnar í skatta­skrárnum veita ekki inn­sýn inn í er hækkun á eigin fé ein­staka eign­ar­halds­fé­laga sem eigna­miklir aðilar eiga. Sem dæmi um þetta  má nefna eign­ar­halds­fé­lag Bjarna Ármanns­sonar fjár­festis og for­stjóra Iceland Seafood, Sjáv­ar­sýn ehf., sem hagn­að­ist um rúm­lega 1600 millj­ónir króna í fyrra á við­skiptum með verð­bréf hvers konar, skráð og óskráð, inn­lend og erlend. Eig­in­fjár­staða þessa félags Bjarna jókst um um sem nemur þess­ari upp­hæð og stóð í tæp­lega 8.8 millj­örðum króna í árs­lok. Ef Bjarni Ármanns­son myndi taka ákvörðun um að greiða sér allan hagnað fyr­ir­tæk­is­ins, þessa 1.6 millj­arða, út sem arð þá myndi það koma fram í skatta­skránum. En ef hann velur að gera það ekki þá sér þess ekki stað í skatt­skránum þar sem upp­lýs­ing­arnar þar ná ekki utan um eigna­myndun í félögum og fyr­ir­tækjum fólks. 

Sam­bæri­legt dæmi má nefna um Þorstein Má Bald­vins­son, for­stjóra Samherja, sem hefur átt félagið Eign­ar­halds­fé­lagið Stein ehf. sem haldið hefur utan um hluta­bréf hans í Samherja. Þor­steinn Már og eig­in­kona hans fyrr­ver­andi, Helga S. Guð­munds­dóttir, hafa nú selt börnum sínum þessi hluta­bréf.  Þetta félag Þor­steins hefur ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2020 en þegar horft er á árs­reikn­ing félags­ins fyrir árið 2019 þá sést að eig­in­fjár­staða félags­ins jókst um tæp­lega 5.5 millj­arð árið 2019 og var tæp­lega 54 millj­arðar króna.  Enginn arður var greiddur út úr félag­inu þetta ár og ekk­ert í skatta­skrám um Þorstein Má Bald­vins­son eða eig­in­konu hans sýndi fram á þessa auð­söfnun. Ef eig­endur félags­ins myndu hins vegar greiða sér ein­hverja millj­arða króna í arð myndu þeir þurfa að greiða af því fjár­magnstekju­skatt og þá myndu þær upp­lýs­ingar koma fram í skatta­skrám. 

Upp­hæð­irnar sem um ræðir í aukn­ingu á eigin fé slíkra fyr­ir­tækja eigna­fólks eru oft og tíðum miklu hærri og stærri en þær upp­hæðir sem um ræðir þegar ein­fald­lega er horft á launa­greiðslur. Til að mynd var Þor­steinn Már Bald­vins­son með rúm­lega þrjár millj­ónir króna í tekjur á síð­asta ári, og hefur verið með sam­bæri­leg laun um ára­bil. Hann var auk þess með skráðar fjár­magnstekjur upp á 95 millj­ónir. Heild­ar­árs­tekjur hans voru því rúm­lega 130 millj­ónir króna. Þessar upp­hæðir eru í raun smáar þegar horft er á hagnað og aukn­ingu eig­in­fjár eign­ar­halds­fé­lags­ins hans síð­ast­liðin ár en þar hleypur eigna­mynd­unin ár hvert á nokkrum millj­örðum króna. 

Svipaða sögu má segja um Bjarna Ármanns­son sem var með tæpar 3.6 millj­ónir í tekjur í fyrra og 33 millj­ónir í fjár­magnstekjur. Eigið fé eign­ar­halds­fé­lags hans jókst hins vegar um 1600 millj­ónir króna sem ríf­lega 21 föld sú upp­hæð sem hann var með heild­ar­árs­tekjur. 

Margföldun á notkun hvers kyns félaga

Þegar horft er á aukn­ingu á notkun eign­ar­halds­fé­laga á Íslandi síð­ast­liðin ár þá er ljóst að hún er tals­verð. Árið 2010 voru rúm­lega 30 þús­und skráð einka­hluta­fé­lög á Íslandi. Árið 2020 voru eign­ar­halds­fé­lögin orðin rúm­lega 40 þús­und. Eign­ar­halds­fé­lögum hvers konar hefur því fjölgað um þriðj­ung síð­ast­liðin ára­tug. 

Á sama tíma hefur fjöldi svo­kall­aðra sam­lags­fé­laga tvö­fald­ast á síð­ast­liðnum ára­tug en það er nýrra félaga­form en einka­hluta­fé­laga­formið og skýrir þetta meðal ann­ars mikla aukn­ingu í notkun þessa forms í hvers kyns rekstri. Árið 2010 voru 929 skráð sam­lags­fé­lög en í lok árs 2020 voru þau orðin 3011. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Tekjulistinn 2021

Samtöl við skattakónga
ViðtalTekjulistinn 2021

Samtöl við skatta­kónga

Þau sem eru hluti af 1 pró­sent tekju­hæstu Íslend­ing­unum sam­kvæmt álagn­inga­skrá eiga margar og mis­mun­andi sögur að baki, bæði af sigrum og sorgum. Stundin ræðir við nokkur þeirra. „Svo þegar ég er búinn að eign­ast alla þessa pen­inga núna þá kann ég ekk­ert að nota þá,“ segir næst­hæsti skatt­greið­andi á land­inu. „Það má and­skot­inn vita hvað verður gert við þetta,“ segir skatta­kóngur að vestan.
Reykvísk fjölskylda hagnaðist um 2,5 milljarða á tæknilausnum í baráttunni við Covid-19
FréttirTekjulistinn 2021

Reykvísk fjöl­skylda hagn­að­ist um 2,5 millj­arða á tækni­lausnum í bar­átt­unni við Covid-19

Inga Dóra Sig­urð­ar­dóttir er skatta­drottn­ing Íslands. Hún hagn­að­ist um tæpa tvo millj­arða á sölu á hluta­bréfum í danska fyr­ir­tæk­inu ChemoMetec, ásamt eig­in­manni sínum, Berki Arn­við­ar­syni. Synir hennar tveir högn­uð­ust báðir um tæpar 250 millj­ónir króna og eru á lista yfir 50 tekju­hæstu Íslend­ing­ana árið 2020.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár