Hönnuðir hafa mikilvægu hlutverki að gegna

Halla Helga­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Mið­stöðvar hönn­unar og arki­tekt­úrs, hefur í gegnum tíð­ina verið leið­andi í umræðum um mik­il­vægi hönn­uða hér á landi og skap­andi greina almennt. Hún starf­aði í aug­lýs­inga­brans­anum um ára­bil og segir hann vera að ganga í gegnum meiri háttar breyt­ingar og að tæki­færi hönn­uða leyn­ist víða.

Hönnuðir hafa mikilvægu hlutverki að gegna
Fram­kvæmda­stjóri Mið­stöðvar hönn­unar og arki­tekt­úrs Halla Helga­dóttir hefur í gegnum störf sín séð tæki­færin í aðferðum hönn­uða og hversu mikil lífs­gæði hægt er að skapa með þeim. Mynd: Davíð Þór

Halla Helga­dóttir hefur í gegnum tíð­ina verið leið­andi í umræðum um mik­il­vægi hönn­uða hér á landi og skap­andi greina almennt. Hún starf­aði í aug­lýs­inga­brans­anum um ára­bil og segir hann vera að ganga í gegnum meiri háttar breyt­ingar og að tæki­færi hönn­uða leyn­ist víða.

Halla Helga­dóttir er graf­ískur hönn­uður að mennt og starfar sem fram­kvæmda­stjóri Mið­stöðvar hönn­unar og arki­tekt­úrs. Hún á far­sælan feril í aug­lýs­inga­brans­anum að baki og starf­aði lengst af sem hönn­uður og stjórn­andi á aug­lýs­inga­stof­unni Fíton. Und­an­farin ár hefur hún nýtt víð­tæka reynslu sína í upp­bygg­ingu og starf­semi Mið­stöðvar hönn­unar og arki­tekt­úrs, og tekur á móti blaða­manni í Grósku hug­mynda­húsi þar sem starf­semin hreiðr­aði um sig síð­asta haust. 

Halla er fædd og upp­alin í Vest­ur­bænum og seg­ist alla tíð haft til­hneig­ingu til að gera hlut­ina í hönd­unum. Sem ung kona í Haga­skóla var hún hluti af hópi sem var mikið í leik­list og tón­list en eftir gagn­fræða­skól­ann …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ósýnileiki kvenna í grafískri hönnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár