Fjármálastjóri Samherja í Namibíu vissi ekkert um mútugreiðslurnar

Adéll Pay, fjár­mála­stjóri Samherja í Namibíu á árunum 2016 til 2020, vissi að eigin sögn ekki um mútu­greiðslur félags­ins til ráða­manna í land­inu. Pay gerð­ist upp­ljóstr­ari hjá ákæru­vald­inu í Namibíu í mál­inu, með sams konar hætti og Jóhannes Stef­áns­son'. Fjár­mála­stjóri Samherja á Spáni, Ingvar Júl­í­us­son, segir Pay hafa vitað af greiðsl­unum.

Fjármálastjóri Samherja í Namibíu vissi ekkert um mútugreiðslurnar
Tveir upp­ljóstr­arar Tveir af upp­ljóstr­un­unum í Sam­herj­a­mál­inu, Jóhannes Stef­áns­son og Adéll Pay, sem bæði störf­uðu hjá Samherja í Namibíu, sjást hér saman á mynd ásamt nokkrum öðrum starfs­mönnum Samherja í Namibíu árið 2016. Bæði eru nú vitni ákæru­valds­ins í Namibíu.

Fjár­mála­stjóri Samherja í Namibíu, Adéll Pay, hafði ekki hug­mynd um að útgerð­ar­fé­lagið hefði stundað mútu­greiðslur til namibískra stjórn­mála- og áhrifa­manna þegar greint var frá þessum greiðslum í fjöl­miðlum í nóv­em­ber árið 2019. Adéll var samt einn æðsti stjórn­andi Samherja í land­inu og er nefnd sem annar helsti stjórn­andi Namib­íu­rekstr­ar­ins í rann­sókn­ar­gögnum máls­ins. Adéll, sem er lög­giltur end­ur­skoð­andi að mennt, bar því að minnsta kosti sið­ferði­lega ábyrgð á rekstri Samherja þar sem áttu sér stað greiðslur undir borðið, til ráða­manna í heima­landi hennar, sem hún vissi ekk­ert um. 

Þetta kemur fram í eið­svar­inni yfir­lýs­ingu frá Adéll Pay, sem er hluti af rann­sókn­ar­gögnum ákæru­valds­ins í Namibíu í Sam­herj­a­mál­inu. 

Greiðslurnar inntar af hendi utan Namibíu

Greiðsl­urnar fóru að hluta til frá banka­reikn­ingum sem félög Samherja í Namibíu áttu en voru fram­kvæmdar af aðilum sem unnu ekki á skrif­stofu Samherja í Namibíu heldur voru stað­settir í öðrum löndum. Greiðsl­urnar kunna að hafa verið fram­kvæmdar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár