Hann gengur alltaf með mér, dauðinn

Íris Ólöf Sig­ur­jóns­dóttir mynd­list­ar­kona sagði upp störfum sex­tug eftir að hafa fengið krabba­mein tvisvar sinnum og ákvað að láta draum­inn ræt­ast og vinna að mynd­list, sama hvað.

Hann gengur alltaf með mér, dauðinn

Hill­billy hitti Írisi Ólöfu á sýn­ingu hennar í Menn­ing­ar­hús­inu Bergi á Dalvík. Það er árla mánu­dags­morg­uns, frí­dags versl­un­ar­manna, og menn­ing­ar­húsið tekið úr lás sér­stak­lega fyrir við­talið. Mikil ró ríkir innan veggja húss­ins en fyrir utan það hleypur ungur hlaup­ari hring eftir hring, þeyt­ist fram­hjá glugg­unum og dregur aldrei úr hrað­anum.

Talandi um and­stæður. And­stæður er tit­ill sýn­ing­ar­innar sem Hill­billy er mætt til að skoða. Lista­mað­ur­inn Íris Ólöf veltir fyrir sér hinu harða og hinu mjúka, tak­mörk­unum og frelsi, að tak­marka mjúka efnið í harða efn­inu. „Karl og kona, Hjöri og Íris,“ segir Íris og vísar í mann­inn sinn Hjörleif Hjart­ar­son, og hún heldur áfram: „Norðrið og suðrið, ég er svo­lítið mikið þar. Alltaf að berj­ast, alltaf að flytja mig um set, finna jafn­vægi, það getur verið erfitt að vera á báðum stöðum. Er í Svarf­að­ar­dal á sumrin, Reykja­vík á vet­urna,“ bætir Íris við. 

Lét drauminn rætast sextug

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár