Opinberanir í tölvupóstum: Samherjamaður lagði á ráðin með Namibíumanni um að fela greiðslurnar

Jón Óttar Ólafsson, starfs­maður Samherja, ræddi við einn af Namib­íu­mönn­unum sem situr í gæslu­varð­haldi grun­aður um að þiggja mútur frá útgerð­inni um hvernig hægt væri að fela milli­færsl­urnar til þeirra. Namib­íu­mað­ur­inn vildi að Samherji milli­færði pen­inga úr öðrum namibískum banka þar sem upp­lýs­ingar virt­ust leka úr bank­anum sem íslenska útgerðin not­aði.

<span>Opinberanir í tölvupóstum:</span> Samherjamaður lagði á ráðin með Namibíumanni um að fela greiðslurnar
Milli­ð­ur­inn Jón Óttar Ólafsson var milli­liður Samherja við Namib­íu­menn­ina eftir að Jóhannes Stef­áns­son hætti hjá fyr­ir­tæk­inu. Hann sést hér með Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja, Í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Einn af namibísku höf­uð­paur­unum í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu bað útgerð­ar­fé­lagið um að milli­færa pen­ing­ana úr öðrum banka til að leyna greiðsl­unum betur þar sem ein­hver í við­skipta­banka hefði verið að leka upp­lýs­ingum um greiðsl­urnar. Þetta kemur fram í tölvu­póstum á milli starfs­manna Samherja sem emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara hald­lagði hjá Samherja og sendi til ákæru­valds­ins í Namibíu.

Þessir tölvu­póstar hafa vakið athygli hér á landi á síð­ustu dögum vegna þess að í þeim kemur fram stað­fest­ing frá fram­kvæmda­stjóra Afr­íku­út­gerðar Samherja, Aðal­steini Helga­syni, á að hann hafi nefnt mútu­greiðslur sem mögu­lega lausn fyrir Samherja til að fá kvóta í Namibíu. ,,Á ein­hverjum tíma­punkti þá kann það að gera gæfumun­inn að múta einum af leið­togum þess­ara manna,” sagði Aðal­steinn í tölvu­pósti til sam­starfs­manna sinna strax árið 2011 þegar Samherji var að hefja veiðar í Namibíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár