Vilhjálmur segir Sjálfstæðisflokkinn enga skírskotun hafa til kjósenda

Vil­hjálmur Bjarna­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fer hörðum orðum um flokk­inn sinn og spyr hvort hann sé á leið með að verða eins máls flokkur utan um fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið. Vil­hjálmur segir jafn­framt Sam­fylk­ing­ar­fólk leið­in­legt, Pírata á „ein­hverju rófi“ og Mið­flokk­inn trú­ar­hreyf­ingu.

Vilhjálmur segir Sjálfstæðisflokkinn enga skírskotun hafa til kjósenda
Tætir í sig stjórn­mála­flokk­ana Vil­hjálmur sparar hvergi stóru orðin. Mynd: xd.is

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur úthýst fjöl­breytni í innra starfi sínu og hefur enga skírskotun til kjós­enda. Með því hefur flokk­ur­inn smættað sig og heldur áfram á sömu braut, meðal ann­ars með því að „við­halda óskilj­an­legri umræðu um full­veldi á plani frá 1918,“ að mati Vil­hjálms Bjarna­sonar, fyrr­ver­andi þing­manns flokks­ins. Vil­hjálmur spyr sig jafn­framt hvort Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé að verða „eins máls flokkur þar sem „hag­kvæmni“ fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins fæður för“.

Vil­hjálmur skrifar grein í Morg­un­blaðið í dag og sparar hvergi stóru orðin. Yfir­skrift grein­ar­innar er ,,Eru stjórn­mála­flokka í öng­strætum?". Í henni skýtur Vil­hjálmur föstum skotum í allar áttir innan íslenska flokka­kerf­is­ins. Þannig segir Vil­hjálmur að sér sé fyr­ir­munað að skilja fyrir hvað Mið­flokk­ur­inn standi. „Eins manns flokkur án mál­efnis, en leitar þó að „kosn­inga­mál­efn­inu“. Í eins manns flokknum verður til „trú­ar­hreyf­ing“, trú á hinn óskeik­ula for­ingja, þar sem orða­flaum­ur­inn gusast út eins og tómatsósa, en að öðru leyti alger­lega inni­halds­laust blaður,“ skrifar Vil­hjálmur og gefur lítið fyrir snilld Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­manns flokks­ins, sem hann segir að hafi orðið til fyrir slysni í kosn­ingu til for­manns í Fram­sókn­ar­flokknum.

„Meðlimir þess flokks virð­ast flestir hverjir vera á ein­hverju rófi sem engir skilur, ekki einu sinni þeir sjálfir“

Vil­hjálmur heldur áfram og sendir því næst Pírötum pillu. „Meðlimir þess flokks virð­ast flestir hverjir vera á ein­hverju rófi sem engir skilur, ekki einu sinni þeir sjálfir, því þar þarf að kalla til vinnu­staða­sál­fræð­ing til að fundir fún­keri, og fún­kera þó ekki.“

Sam­fylk­ingin segir Vil­hjálmur að hafi eðli Kvenna­lista, án allrar útgeisl­unar og sé einskis máls flokkur. „Að auki, þeir sem tala fyrir þessa fylk­ingu eru fjand­anum leið­in­legri og skap­vondir.“ Vinstri græn segir Vil­hjálmur að séu upp­full af hug­sjóna­fólki, sem hafi þó ekki meiri hug­sjón en þá að hlaupa yfir í aðra flokka fái það ekki alls sem það krefj­ist.

Enginn leiðtogi í sjónmáli

Mest púður fer þó í það hjá Vil­hjálmi að gagn­rýna sinn eigin flokk og ljós­lega er hann ekki hrif­inn af því sem þar fer fram nú um stundir. Þar hafi fjöl­breytni verið úthýst og meðal ann­ars hafi for­ysta flokks­ins tekið þá afstöðu árið 2014 að aft­ur­kalla aðild að Evr­ópu­sam­band­inu sem hafi þá legið í svefni og engan skaðað. Það hafi hins vegar valdið því að stór hópur í atvinnu­rek­enda­deild flokks­ins sagt skilið við hann og gengið til liðs við nýjan smá­flokk, skrifar Vil­hjálmur og vísar þar til Við­reisnar.

„Hvernig má það vera að flokkur, sem var með 40% kjör­fylgi, telur það ásætt­an­legt að fá 25% kjör­fylgi,“ spyr Vil­hjálmur svo og segir einnig að end­ing­ar­tími for­manna flokks­ins hafi verið um tíu ár og nýr leið­togi hafi ávallt verið í aug­sýn. „Nema núna!“

„Þetta fólk hefur orðið til í kosn­ingamask­ín­unni inni í Sjálf­stæð­is­flokknum!“

Vil­hjálmur segir svo að lokum að hann sjálfur hafi lokið afskiptum sínum af stjórn­málum og sé því frjáls að því að láta ýmis­legt frá sér fara eftir að hafa spurt sig áleit­inna spurn­inga. Þannig spyrji hann sig hvort að próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi skilað sig­ur­strang­legum listum. „Horfandi á mál utan frá og spurt þá sem ekki eru inn­múr­aðir, segja kjós­endur: Þetta fólk höfðar ekki til mín! Þetta fólk hefur enga skírskotun til mín! Þetta fólk hefur orðið til í kosn­ingamask­ín­unni inni í Sjálf­stæð­is­flokknum! Engin skírskotun til almennra kjós­enda!“

Hafnað í síðasta prófkjöri

Vil­hjálmur sat á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Suð­vest­ur­kjör­dæmi á árunum 2013 til 2017. Hann sat í fimmta sæti lista flokksin fyrir kosn­ing­arnar 2017 en náði ekki kjöri. Hann gaf kost á sér í próf­kjöri flokks­ins í kjör­dæm­inu fyrr á þessu ári en hafði ekki árangur sem erf­iði og varð ekki meðal sex efstu. 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár