Óstaðfest Covid smit teppa bráðamóttökuna

Eggert Eyj­ólfs­son, bráða­læknir á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, segir þá sjúk­linga sem eru grun­aðir um að vera með Covid smit reyn­ist erf­ið­astir á bráða­mót­töku. Þá þurfi þeir sjúk­lingar, sem smit­aðir eru af Covid og þurfa á gjör­gæslu­plássi að halda, að bíða eftir því plássi á „pakk­aðri“ bráða­mót­töku.

Óstaðfest Covid smit teppa bráðamóttökuna
Stjórn­mála­menn skorti skiln­ing Eggert Eyj­ólfs­son, bráða­læknir starf­andi á bráða­mót­töku Land­spít­ala, segir stjórn­mála­menn á Íslandi skorta skiln­ing og inn­sýn inn í hvernig það er að starfa í heil­brigð­is­kerf­inu. Þetta segir hann end­ur­spegl­ast í ummælum Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra um að auka þurfi fram­leiðni í kerf­inu í takt við fjár­fram­lög. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það að þurfa að stað­festa hvort þeir ein­stak­lingar sem leita á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans séu með Covid smit teppir veru­lega flæði og starf­semi bráða­mót­tök­unnar. Starf­semin er nú þegar þung vegna mann­eklu. Þeir sjúk­lingar sem þurfa á gjör­gæslu­plássi að halda vegna veik­inda í tengslum við Covid sýk­ingu þurfa því að bíða á „pakk­aðri“ bráða­mót­töku þar til þeir kom­ast á gjör­gæslu.

Þetta segir Eggert Eyj­ólfs­son, bráða­læknir á bráða­mót­töku Land­spít­ala. Bráða­móttakan tekur á móti tölu­verðum fjölda Covid sjúk­linga.  Að mati Eggerts mun þeim fara fjölg­andi. „Það er ekki á það bæt­andi miðað við ástandið eins og það er núna á sjúkra­hús­inu.“ Bráða­mót­tök­una segir hann fulla og ef eitt­hvað bregður út af séu starfs­menn í „miklum vand­ræðum“. 

Staðfesting á smitum tímafrek

Að sögn Eggerts tekur mik­inn tíma að stað­festa hvort um Covid smit sé að ræða hjá þeim sjúk­lingum sem leita þangað með ein­kenni. „Þetta eru sjúk­lingar sem leita á bráða­deild og þurfa að leggj­ast inn sem eru með önd­un­ar­færa­ein­kenni, háls­bólgu, hósta eða nið­ur­gang og kvið­verki. Það þarf að stað­festa að þessir sjúk­lingar séu ekki með Covid-19 og sú stað­fest­ing tekur mik­inn tíma og teppir flæði á bráða­mót­tök­unni.“ 

Þeir sjúk­lingar þurfi ein­angr­un­ar­pláss ofan á þá sjúk­linga sem þau þurfa vegna ann­arra umgangspesta. „Það eru þessir sjúk­lingar sem eru grun­aðir um Covid en ekki stað­festir sem reyn­ast okkur erf­ið­astir,“ segir hann. Eitthvað er því um það að sjúk­lingar sem leita á bráða­mót­töku grein­ist smit­aðir af Covid þar. „Svo það er allur gangur á því hvort smit séu þekkt þegar þau koma til okkar.“  

Sjúk­lingar með stað­fest Covid smit eiga að hans sögn greiða leið inn á spít­al­ann, þrátt fyrir skort á leg­u­rýmum. „Enn sem komið er en það á lík­leg­ast eftir að breyt­ast nema þeir opni aðra Covid deild en það þýðir að þau legu­pláss lok­ast fyrir öðrum sjúk­lingum“. 

„Sú staða getur komið upp að sjúk­lingur er fastur á pakk­aðri bráða­mót­töku á meðan beðið er eftir því að hann kom­ist upp á gjör­gæslu“

Und­an­farna daga hafa einn til tveir sjúk­lingar greinst með Covid-19 á hverri vakt sem Eggert hefur unnið á bráða­mót­tök­unni. Í síð­ustu viku upp­lifði hann til að mynda vakt þar sem þurfti að leggja þrjá Covid smit­aða sjúk­linga inn á spít­al­ann af bráða­mót­töku, þar af tvo beint á gjör­gæslu. Síðast þegar Eggert var á vakt á bráða­mót­töku biðu fimmtán manns eftir inn­lögn á spít­al­ann. 

Gjörgæslu sjúklingar fastir á „pakkaðri“ bráðamóttöku

Bráða­móttakan sinnir að sögn Eggerts allra veik­ustu Covid sjúk­ling­unum en þeir sem dvelja á Covid göngu­deild­inni og veikj­ast mikið eða hratt þurfa að fara í gegnum bráða­mót­tök­una áður en þeir eru lagðir inn á gjör­gæslu. Það sama á við um Covid sjúk­linga sem eru veikir heima og veik­indi þeirra versna. Í sumum til­fellum þurfi þeir að koma fyrst við á bráða­mót­töku svo hægt sé að bæta ástand þeirra áður en þeir leggj­ast svo inn á göngu­deild­ina eða gjör­gæslu. 

Covid smit­aður sjúk­lingur getur þurft að bíða á bráða­mót­tök­unni í allt að klukku­tíma áður en hann fær pláss á gjör­gæslu. „Sú staða getur komið upp að sjúk­lingur er fastur á pakk­aðri bráða­mót­töku á meðan beðið er eftir því að hann kom­ist upp á gjör­gæslu,“ segir hann.

Aðeins tíu gjör­gæslu rými eru laus á Land­spít­al­anum vegna mann­eklu. Þegar blaða­maður ræddi við Eggert voru tólf sjúk­lingar í þeim tíu plássum og því mikið álag á gjör­gæsl­unni. „Þeir sjúk­lingar sem þurfa á gjör­gæslu að halda eru mjög veikir. Það veikir að þeir geta hrein­lega dáið ef þeir kom­ast ekki á gjör­gæsl­una á ásætt­an­legum tíma eða innan við klukku­tíma í flestum til­fellum,“ segir hann og heldur áfram:

„Bráða­móttakan getur veitt gjör­gæslu­með­ferð en bara í stuttan tíma. Á gjör­gæslu er miðað við að einn hjúkr­un­ar­fræð­ingur sinni hverjum sjúk­ling. Á bráða­mót­töku væri eðli­legt að hver hjúkr­un­ar­fræð­ingur sinnti þremur til fjórum sjúk­lingum en á Land­spít­al­anum eru oft sex til átta sjúk­lingar á hvern hjúkr­un­ar­fræð­ing. Svo ef sá hjúkr­un­ar­fræð­ingur er fastur með gjör­gæslu­sjúk­ling þá eru kannski sex eða sjö sjúk­lingar sem fá ekki þjón­ustu á sama tíma.“

Stjórnmálamenn skortir innsýn og skilning

Eggert segir stjórn­mála­menn á Íslandi skorta „alla inn­sýn og skiln­ing á því að tölur segi ekki allt“. „Fram­leiðni heil­brigð­is­kerf­is­ins ætti að meta í auknum lífs­gæðum og lif­uðum árum en ekki í spöruðum krónum eða fjölda sjúk­linga séðum af hverjum lækni eða hjúkr­un­ar­fræð­ingi per klukku­tíma“.

Þetta segir hann eiga við um ummæli Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra, sem sagði í við­tali við mbl.is að afköst í heil­brigð­is­kerf­inu hafi ekki þró­ast í takt við aukin fjár­fram­lög. „Það er ekk­ert sér­stak­lega eft­ir­sókn­ar­vert að starfa í eða þurfa að leita þjón­ustu í einu ódýrasta heil­brigð­is­kerfi evr­ópu, eða þar sem meiri áhersla er á fram­leiðni en fag­leg vinnu­brögð,“ segir Eggert. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Spítalinn er sjúklingurinn

FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Léttir að heil­brigð­is­ráð­herra ætlar að skoða rétt­ar­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur varð meyr við að lesa frétt­ar­til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu þess efnis að heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að taka til skoð­unar rétt­ar­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks í tengslum við til­kynn­ingar og rann­sókn alvar­legra atvika í heil­brigð­is­þjón­ustu. Ásta er eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn á Íslandi sem hefur fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings vegna starfs síns.
ViðtalSpítalinn er sjúklingurinn

Missti allt úr hönd­unum eftir sýknu­dóm

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur er eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn á Íslandi sem hefur verið ákærð fyrir mann­dráp af gáleysi í starfi. Lög­reglu­rann­sókn, ákæran, sem og máls­með­ferðin, tóku mikið á Ástu sem lýsir með­ferð máls­ins sem stríði. Þrátt fyrir að hafa hlotið sýknu í mál­inu hefur stríðið setið í henni, leitt hana á dimma staði þangað til að hún „missti allt úr hönd­unum“.

31 mín. lestur

FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Yfirfull bráða­mót­taka gat ekki tekið á móti sjúk­lingi í hjarta­stoppi

Helga Rósa Más­dóttir, deild­ar­stjóri bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, stað­festir í sam­tali við Stundina að sjúk­lingi í hjarta­stoppi var vísað frá bráða­mót­tök­unni yfir á Hjarta­gátt spít­al­ans vegna þess að bráða­móttakan var full. Skráð hefur verið atvik vegna máls­ins. „Við erum að hafna deyj­andi fólki,“ segir áhyggju­fullur starfs­maður.
VettvangurSpítalinn er sjúklingurinn

Veikt fólk inni­lokað í glugga­lausu rými

Á þeim þremur mán­uðum sem liðnir eru frá því að starfs­fólk bráða­mót­tök­unnar sendi frá sér hjálp­ar­kall þar sem það sagð­ist lifa ham­farir hefur lítið sem ekk­ert verið aðhafst til að bæta starfs­að­stæður þeirra. Ef eitt­hvað er þarf það að hlaupa enn hraðar og mann­rétt­indi sjúk­linga eru brotin að mati bráða­læknis sem fylgdi blaða­manni í gegnum deild­ina. Aðstæður á vett­vangi voru slá­andi.

30 mín. lestur

FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Áhyggjur af því að kom­andi kosn­ingar hafi áhrif á sam­stöðu almenn­ings

Hjalti Már Björns­son, bráða­læknir á Land­spít­al­anum, segir að hann og annað heil­brigð­is­starfs­fólk hafi áhyggjur af því að það „muni skorta á sam­stöðu fólks til að takast á við þetta með sama hætti og hefur verið gert hingað til“. Þá seg­ist hann einnig hafa áhyggjur af sam­stöðu almenn­ings í ljósi þess að kosn­ingar séu á næsta leiti og að stjórn­mála­menn lýsi and­stöðu sinni við ráð­legg­ingar sótt­varna­læknis.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár