Áhyggjur af því að komandi kosningar hafi áhrif á samstöðu almennings

Hjalti Már Björns­son, bráða­læknir á Land­spít­al­anum, segir að hann og annað heil­brigð­is­starfs­fólk hafi áhyggjur af því að það „muni skorta á sam­stöðu fólks til að takast á við þetta með sama hætti og hefur verið gert hingað til“. Þá seg­ist hann einnig hafa áhyggjur af sam­stöðu almenn­ings í ljósi þess að kosn­ingar séu á næsta leiti og að stjórn­mála­menn lýsi and­stöðu sinni við ráð­legg­ingar sótt­varna­læknis.

Áhyggjur af því að komandi kosningar hafi áhrif á samstöðu almennings
Mik­il­vægt að taka mark á sér­fræð­ingum Hjalti segir mik­il­vægt að almenn­ingur og stjórn­mála­menn taki mark á áliti sér­fræð­inga á borð við sótt­varna­lækni um það hvernig best sé að taka á far­aldr­inum Mynd: Heiða Helgadóttir

Hjalti Már Björns­son, bráða­læknir á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, seg­ist ótt­ast að stjórn­mála­menn kunni að draga úr sam­stöðu almenn­ings gegn Covid-19 far­aldr­inum vegna kom­andi þing­kosn­inga. 78 greindust inn­an­lands í gær, þar af 52 full­bólu­settir og fimm hálf­bólu­settir. 59 þeirra voru utan sótt­kvíar.

Þegar blaða­maður spurði Hjalta Má um það hvernig honum lit­ist á stöð­una í far­aldr­inum eins og hún væri núna í ljósi þess að nú bylgja sé skoll­inn á, byrjar hann á því að taka það fram að þrátt fyrir að hann sé læknir sé hann ekki sér­fræð­ingur í smit­sjúk­dómum eða far­sóttum. 

Það er Hjalta mik­il­vægt að tekið sé mark á sér­fræð­ingum í þeim efnum, að þeir hafi mest vit á hvað sé best að aðhaf­ast við slíkar aðstæður. Hann segir skilj­an­legt að almenn­ingur sé þreyttur á sótt­varn­ar­að­gerðum og að öllum langi að „geta farið að lifa eðli­legu lífi“ en hann von­ist til þess að ef gripið verði til harka­legra aðgerða að almenn­ingur muni sýna því skiln­ing eins og áður og „fylgja ráð­legg­ingum sótt­varna­læknis“. 

Fólk tjái sig ekki hafi það ekki sérþekkingu

Varðandi það að ráð­herrar hafi stigið fram með efa­semdir sínar varð­andi sótt­varn­ar­að­gerðir segir hann að sínu mati „ætti fólk ekki að tjá sig um hluti sem það hefur ekki sér­þekk­ingu á“ og að „við eigum að treysta áliti þeirra sem mest vit hafa á far­sóttum um það hvernig við eigum að bregð­ast við þess­ari stöðu.“ 

Hann telur hugs­an­legt að athuga­semdir ráð­herra og ann­arra sem lýsa and­stöðu sinni við ráð­legg­ingar sótt­varna­læknis eigi þátt í því að sam­staða almenn­ings fari minnk­andi. Hann hafi áhyggjur af því að kom­andi kosn­ingar muni hafa áhrif á sam­stöð­una. 

„Við eigum að treysta áliti þeirra sem mest vit hafa á far­sóttum“

Fram að þessu hafi sér­fræð­ingar fengið að sitja í fram­sæt­inu varð­andi hvernig takast eigi við far­ald­ur­inn og stjórn­mála­menn í aft­ur­sæt­inu en að mati Hjalta gæti það verið að breyt­ast eftir því sem líður á far­ald­ur­inn og stytt­ist í kosn­ingar. „En sem betur fer eru Íslend­ingar almennt vel upp­lýstir. Hér erum við ekki að glíma við að það sé mark­tækur hluti þjóð­ar­innar sem skilur ekki mik­il­vægi bólu­setn­inga eða er opin­ber­lega að berj­ast gegn þeim. Ég vona svo sann­ar­lega að popúlista stjórn­mála­menn séu ekki að stökkva á þann vagn eins og við höfum séð ger­ast í Banda­ríkj­unum þar sem hálf þjóðin er núna óbólu­sett og margir trúa því að bólu­efni sé skað­legt sem hamlar veru­lega sótt­varna aðgerðum þar í landi.“

Áhyggjur af skorti á samstöðu

Heil­brigð­is­starfs­fólk segir hann hafa áhyggjur af því að það muni skorta á sam­stöðu almenn­ings fyrir slíkum aðgerðum.  Þau hafi líka áhyggjur af því að álagið á spít­al­anum, sem er mikið fyrir, muni aukast vegna fjölg­unar í smitum í sam­fé­lag­inu og vegna þess að útlit sé fyrir að bólu­efni virki ekki sem skyldi. „Við í heil­brigð­is­kerf­inu munum alltaf þurfa að und­ir­búa okkur í að takast á við verstu mögu­legu sviðs­mynd­ina,“ segir hann.

Hann segir ekki „enda­laust svig­rúm“ vera á spít­al­anum til að taka á móti ein­stak­lingum sem verða alvar­lega veikir af Covid. „Ef að fjöldi þeirra verður yfir því sem spít­al­inn ræður við þá er heil­brigð­is­kerfið komið í veru­leg vand­ræði og þjóðin þar með líka.“ hann segir að ef veirunni verði sleppt lausri í sam­fé­lag­inu séu það aug­ljós­lega áhyggjur sótt­varna­læknis að „það gæti valdið far­aldri þar sem umtals­verður fjöldi verður lífs­hættu­lega veikur“.

Einangrun erfiður hluti af því að veikjast

Hjalti segir það hafa mikil áhrif á sjúk­linga sem liggja inn á spít­ala með hættu­leg eða lang­vinn veik­indi að heim­sóknir á spít­al­ann séu tak­mark­aðar vegna stöð­unnar. „Ein­angrun er mjög erf­iður hluti af því að veikj­ast og núna er það bein afleið­ing af því að smit eru komin á flug í sam­fé­lag­inu að það er óhjá­kvæmi­legt að vernda þá sem eru veik­astir fyrir og auka tak­mark­anir á heim­sóknum. Þetta er þung staða og erfið en það verður að setja heilsu fólks og líf í for­gang og grípa til þeirra ráð­staf­ana sem nauð­syn­legar eru.“

„Ef að fjöldi þeirra verður yfir því sem spít­al­inn ræður við þá er heil­brigð­is­kerfið komið í veru­leg vand­ræði og þjóðin þar með líka“

Ef ekk­ert yrði gert og veiran myndi fara óbeisluð um sam­fé­lagið væri það staða sem hættu­lega veikir og lang­veikir þyrftu að búa við í lengri tíma. Að mati Hjalta á það þó ekki aðeins við þá sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. „Það eru líka ískyggi­legar fréttir um það að jafn­vel fólk sem er ekki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, er ekki orðið aldrað og við­kvæmt og hefur verið bólu­sett, að það geti lent í alvar­legum veik­indum og þess vegna verðum við að halda þessum far­aldri niðri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Spítalinn er sjúklingurinn

FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Léttir að heil­brigð­is­ráð­herra ætlar að skoða rétt­ar­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur varð meyr við að lesa frétt­ar­til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu þess efnis að heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að taka til skoð­unar rétt­ar­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks í tengslum við til­kynn­ingar og rann­sókn alvar­legra atvika í heil­brigð­is­þjón­ustu. Ásta er eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn á Íslandi sem hefur fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings vegna starfs síns.
ViðtalSpítalinn er sjúklingurinn

Missti allt úr hönd­unum eftir sýknu­dóm

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur er eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn á Íslandi sem hefur verið ákærð fyrir mann­dráp af gáleysi í starfi. Lög­reglu­rann­sókn, ákæran, sem og máls­með­ferðin, tóku mikið á Ástu sem lýsir með­ferð máls­ins sem stríði. Þrátt fyrir að hafa hlotið sýknu í mál­inu hefur stríðið setið í henni, leitt hana á dimma staði þangað til að hún „missti allt úr hönd­unum“.

31 mín. lestur

FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Yfirfull bráða­mót­taka gat ekki tekið á móti sjúk­lingi í hjarta­stoppi

Helga Rósa Más­dóttir, deild­ar­stjóri bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, stað­festir í sam­tali við Stundina að sjúk­lingi í hjarta­stoppi var vísað frá bráða­mót­tök­unni yfir á Hjarta­gátt spít­al­ans vegna þess að bráða­móttakan var full. Skráð hefur verið atvik vegna máls­ins. „Við erum að hafna deyj­andi fólki,“ segir áhyggju­fullur starfs­maður.
VettvangurSpítalinn er sjúklingurinn

Veikt fólk inni­lokað í glugga­lausu rými

Á þeim þremur mán­uðum sem liðnir eru frá því að starfs­fólk bráða­mót­tök­unnar sendi frá sér hjálp­ar­kall þar sem það sagð­ist lifa ham­farir hefur lítið sem ekk­ert verið aðhafst til að bæta starfs­að­stæður þeirra. Ef eitt­hvað er þarf það að hlaupa enn hraðar og mann­rétt­indi sjúk­linga eru brotin að mati bráða­læknis sem fylgdi blaða­manni í gegnum deild­ina. Aðstæður á vett­vangi voru slá­andi.

30 mín. lestur

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár