Gylfi Sigurðsson handtekinn fyrir meint brot gegn barni

Lög­reglan í Bret­landi gerði hús­leit hjá lands­liðs­mann­inum og sleppti honum gegn trygg­ingu.

Gylfi Sigurðsson handtekinn fyrir meint brot gegn barni
Gylfi Sig­urðs­son Leik­mað­ur­inn hefur leikið 78 lands­leiki fyrir Ísland. Mynd: Светлана Бекетова

Lög­reglan í Manchester hand­tók á föstu­dag knatt­spyrnu­mann­inn Gylfa Sig­urðs­son, leik­mann Everton í ensku deild­inni og íslenska lands­liðs­ins, vegna gruns um brot gegn barni. Þetta herma heim­ildir Mbl.is.

Everton stað­festi í gær að leik­maður í aðal­hóp liðs­ins hefði verið sendur frá lið­inu vegna lög­reglu­rann­sóknar. „Félagið mun halda áfram að styðja við rann­sókn yfir­valda og mun ekki gefa út frek­ari yfir­lýs­ingar að þessu sinni,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá félag­inu.

Bresku blöðin Daily Mail og The Sun ásamt fleirum höfðu greint frá hand­tök­unni í gær án þess að nefna Gylfa á nafn. Í fréttum þeirra kom fram að lög­reglan hefði gert hús­leit hjá leik­manni vegna kyn­ferð­is­brota­máls, en eftir hand­töku hafi honum verið sleppt gegn trygg­ingu. Kom fram að leik­mað­ur­inn væri 31 árs gam­all, giftur og að ásak­an­irnar væru alvar­legar.

Gylfi er einn besti knatt­spyrnu­maður Íslands­sög­unnar og hefur átt far­sælan feril í atvinnu­mennsku. Á ung­lings­aldri lék hann með FH og Breiða­blik áður en hann gekk til liðs við Reading á Englandi aðeins 16 ára að aldri. Árið 2010 var samn­ingur hans seldur til 1899 Hof­fen­heim á Þýska­landi þar sem hann lék í tvö ár. Eftir tíma á láni hjá Swansea í Wales gekk hann til liðs við Totten­ham Hotspur. Fór hann aftur til Swansea áður en hann var seldur til Everton árið 2017 fyrir met­upp­hæð hjá lið­inu. Hefur hann leikið þar síðan og verið vara­fyr­ir­liði liðs­ins. Gylfi var ekki á lista yfir leik­menn liðs­ins um helg­ina þegar liðið spil­aði æfinga­leik.

Gylfi hefur leikið 78 lands­leiki fyrir íslenska karla­lands­liðið og skorað í þeim 25 mörk. Hann var lyk­il­maður í lands­liðs­hópnum þegar Ísland lék á sínu fyrsta stór­móti, Evr­ópu­keppn­inni 2016, og komst í 8 liða úrslit eftir fræk­inn sigur á Englandi. Þá var hann einnig í hópnum í Heims­meist­ara­mót­inu 2018.

Gylfi er eig­andi útgerð­ar­fé­lags­ins Blika­bergs sem hann hefur rekið ásamt föður sínum og bróður. Árið 2012 kom hann með 38 millj­ónir króna til lands­ins í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands til að fjár­festa í rekstr­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár