Viðurkenna að hafa haldið upplýsingum frá rannsakendum

Eimskip greiða 1,5 millj­arða í sátt vegna ólög­legs sam­ráðs við Samskip. Í sátt­inni, sem gerð er við Sam­keppn­is­eft­ir­litið, við­ur­kenna stjórn­endur félags­ins að gögnum hafi verið haldið frá rann­sak­endum. Tvö ár eru síðan stjórn­ar­for­maður Eimskips sagði rann­sókn­ina ólög­lega.

Viðurkenna að hafa haldið upplýsingum frá rannsakendum
Afdrátt­ar­laus Baldvin Þor­steins­son, stjórn­ar­for­maður Eim­skipa­fé­lags­ins, sagði árið 2019 að rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hafi verið ólög­leg. Félagið hans hefur nú gert sátt vegna hennar og við­ur­kennt sam­keppn­islaga­brot. Mynd: Anton Brink / Fréttablaðið

Eim­skipa­fé­lag Íslands hefur við­ur­kennt að hafa átt ólög­legt sam­ráð við Samskip og sam­þykkt að greiða 1,5 millj­arða króna vegna þessa í rík­is­sjóð. Skipa­fé­lagið hefur gert sátt þess efnis við Sam­keppn­is­eft­ir­litið eftir að hafa verið til rann­sóknar fyrir brotin síðan 2013. Samskip hafa aftur á móti enga sátt gert og eru enn til rann­sóknar fyrir brotin sem Eimskip hefur geng­ist við. Stjórn­ar­for­maður Eimskips full­yrti á síð­asta ári að rann­sókn eft­ir­lits­ins hafi verið ólög­leg. 

Málið snýst um sam­ráð sem Eimskip og Samskip áttu í frá 6. júní 2008 þegar for­svars­menn félags­ins áttu fund. Fyr­ir­tækin höfðu sam­ráð um breyt­ingar á sigl­inga­kerfum, um skipt­ingu á mörk­uðum eftir stærri við­skipta­vinum og um álagn­ingu gjalda og afslátt­ar­kjör. Í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu vegna sátt­ar­innar segir einnig að Eimskip við­ur­kenni að hafa brotið sam­keppn­is­lög með því að veita ekki nauð­syn­legar og réttar upp­lýs­ingar við rann­sókn máls­ins. 

Skilja má yfir­lýs­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sem svo að sektin hafi verið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár