Vilborg Frið­riks­dóttir Varð hrædd þegar hún fann fyrsta skalla­blett­inn. Mynd: Heiða Helgadóttir

Elskar sjálfa sig meira eftir að hún missti hárið

Vilborg Friðriks­dóttir er með sjálfs­ofnæmis­sjúkdóminn Alapecia areata sem veldur því að hún fær skalla­bletti. Áhyggjurnar og vanlíðanin var mikil vegna þessa en hún segir að sér hafi farið að líða betur eftir að hún rakaði af sér hárið.

„Ég fann fyrsta skalla­blettinn í lok október í fyrra. Hann var pínu­lítill; eins og fimmkall,“ segir Vilborg Friðriks­dóttir, sem hringdi í heilsu­gæsluna daginn eftir að hún sá fyrsta blettinn, fékk að tala við hjúkrunar­fræðing og síðan fékk hún tíma hjá heimilis­lækninum.

„Fyrsta hugsunin var að ég væri með einhvern ólæknandi sjúkdóm af því að ég var að missa hárið og ég hélt ég væri að deyja. Ég var ofboðs­lega hrædd. Ég hef í gegnum tíðina verið með fallegt og sítt hár og hef aldrei þurft að nota efni í það að ráði og fékk oft hrós út á hárið. Þannig að hárið var stór hluti af mér. Ég hef gengið í gegnum ýmislegt og hárið er það eina við mig sem mér hefur alltaf þótt vænt um.“

Læknirinn vissi ekki hvað olli hármissinum, en fullvisaði Vilborgu um að hún myndi lifa af.

„Hann sagði að ég …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Konur sem missa hárið

Mest lesið undanfarið ár