Samherjamálið í DNB: Bankinn horfði framhjá 80 prósent af vísbendingum um brot á lögum um varnir gegn peningaþvætti

Sektar­greiðslan sem DNB-bankinn út af rann­sókninni á peningaþvættis­vörnum sem hófst eftir Samherja­málið er sú hæsta í sögu Noregs. Sektin er hins vegar einungis 1/30 hluti af sektinni sem Danske Bank greiddi fyrir að stöðva ekki peninga­þvætti í gegnum bankann.

Samherjamálið kveikjan að rannsókninni
Sam­herj­a­málið kveikjan að rann­sókn­inni Sam­herj­a­málið í Namibíu og við­skipti Samherja við DNB voru kveikjan að rann­sókn­inni á norska DNB-bank­anum sem lauk með 6 millj­arða sekt. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, sést hér með Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, sem nú bíður rétt­ar­halda í mál­inu í Namibíu.

Norski stór­bankinn DNB horfði framhjá og kannaði ekki sérstak­lega 1.8 milljónir vísbendinga um brot á lögum um varnir gegn peninga­þvætti á árunum 2014 til 2018 sem eftirlits­kerfi bankans kom auga á. Samtals var um að ræða fjögur af hverjum fimm slíkum tilfellum sem eftirlits­kerfið fann sem ekki voru könnuð og því kannaði bankinn aðeins 1/5 af öllum þeim grun­samlegu tilfellum sem komu upp í bankanum. Frá þessu er greint í norska blaðinu Dagens Næringsliv í dag. 

Samherja­málið í DNB, sem upp kom sem hluti af Namibíu­málinu í nóvember 2019, leiddi til þess að norska fjármála­eftirlitið hóf rannsókn á eftirliti DNB-bankans með mögulegu peninga­þvætti. Þessi rannsókn leiddi til hæstu sektar­greiðslu sem norskur banki hefur þurft að greiða vegna brotalama í starfsemi sinni, sex millarða íslenskra króna eða 400 milljóna norskra. Samherja­málið leiddi því til rann­sóknarinnar á DNB en niður­stöðurnar snúast fleiri mál og dæmi en bara viðskipti Samherja við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár