Mikil fjölgun ofbeldis- og fíkniefnabrota

Mun fleiri ofbeld­is­brot voru til­kynnt til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í mars en að með­al­tali síð­ustu mán­uði. Til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi eru 28 pró­sent fleiri fyrstu þrjá mánu­uði árs­ins en að með­al­tali á sama tíma síð­ustu þrjú ár. Fjöldi fíkni­efna­brota hefur rokið upp.

Mikil fjölgun ofbeldis- og fíkniefnabrota
Meira ofbeldi og fíkni­efni Til­kynn­ingum um ofbeld­is­brot og fíkni­efna­brot hefur fjölgað. Mynd: Davíð Þór

Ofbeld­is­brotum sem komu til kasta lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölg­aði milli mán­að­anna febr­úar og mars. Ofbeld­is­brotum fjölgar einnig sé horft til með­al­stals bæði síð­ustu sex mán­aða og síð­ustu tólf mán­aða. Fyrstu þrjá mán­uði árs­ins hafa borist 28 pró­sent fleiri til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi en bár­ust að með­al­tali á sama tíma­bili síð­ast­liðin þrjú ár á undan.

Þetta kemur fram í afbrota­töl­fræði lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í mars voru skráð 718 hegn­ing­ar­laga­brot og fjölgar þeim nokkuð milli mán­aða. Engu að síður eru þau brot færri en að með­al­tali síð­ustu sex og síð­ustu tólf mán­uði. Vegur þar mest mikil fækkun inn­brota en til­kynn­ingar um þau voru 34 pró­sentum færri síð­asta hálfa árið en að með­al­tali. Raunar hafa ekki verið skráð jafn fá inn­brot í einum mán­uði á síð­ustu tíu árum og í mars. Um fjögur pró­sent færri til­kynn­ingar um hegn­ing­ar­laga­brot borist það sem af er ári en báust að með­al­tali á sama tíma­bili síð­ast­liðin þrjú ár.

230 tilkynningar um heimilisofbeldi fyrstu þrjá mánuði ársins

Tilynnt var um 117 ofbeld­is­brot í mars­mán­uði. Þar af var til­kynnt um 95 minni­háttar lík­ams­árásir og 16 stór­felldar lík­ams­árásir. Ofbeld­is­brotum fjölg­aði um átján pró­sent miðað við sex mán­aða með­al­tal og um tólf pró­sent miðað við tólf mán­aða með­al­tal. Þá hafa borist um fjögur pró­sent fleiri til­kynn­ingar um ofbeld­is­brot fyrstu þrjá mán­uði árs­ins en bár­ust að með­al­tali á sama tíma­gili síð­ast­liðin þrjú ár.

Alls bár­ust 75 til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi í mars­mán­uði, tveimur færri en í febr­úar. Til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi voru níu pró­sent fleiri en að með­al­tali síð­ustu sex mán­uði og einnig síð­ustu tólf mán­uði. Sú aukn­ing tilst þó innan töl­fræði­legra marka. Hins vegar hafa borist 28 pró­sent fleiri til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi fyrstu þrjá mán­uði árs­ins heldur en bár­ust að með­al­tali fyrstu þrjá mán­uði þriggja síð­ustu ára, alls 230 til­kynn­ingar.

Fleiri til­kynn­ingar bár­ust til lög­reglu um kyn­ferð­is­brot í mars en í febr­úar, alls fjórtán, en engu að síður fækkar þeim veru­lega sé horft til með­al­tals síð­ustu sex og tólf mán­aða. Að með­al­tali var til­kynnt um 26 kyn­ferð­is­brot síð­ustu tólf mán­uði og um 31 brot síð­ustu sex mán­uði. Hins vegar þarf að gæta að því að gríð­ar­legur fjöldi kyn­ferð­is­brota var til­kynntur í des­em­ber síð­ast­liðnum, sem hefur áhrif á með­al­tals­reikn­inga. Þann mánuð var til­kynnt um 80 kyn­ferð­is­brot. Ef des­em­ber­mánður er felldur út úr með­al­tals reikn­ingum var til­kynnt um ríf­lega 21 kyn­ferð­is­brot að með­al­tali á mán­uði á síð­ustu sex og tólf mán­aða tíma­bilum.

Þá er gríð­ar­leg fjölgun á skráðum fíkni­efna­brotum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í mars­mán­uði voru skráð 147 fíkni­efna­brot, þar af fjögur stór­felld. Í febr­úar voru brotin 149 og þar af þrjú stór­felld. Fjöldi fíkni­efna­brota hefur risið gríð­ar­lega frá því í jan­úar þegar skráð var 81 brot. Aukn­ingin miðað við síð­ustu sex mán­uði er 50 pró­sent og 47 pró­sent miðað við síð­ustu tólf mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár