Íslenski fálkinn hefur verið alfriðaður síðan 1940, enda er stofnstærðin bara um 350 pör. Fyrr á öldum var hann ein verðmætasta útflutningsvara landsins. Fálkinn var þá eign Danakonungs og þóttu þeir allra fálka fremstir til veiða hjá evrópska aðlinum. Þennan fallega fálka hitti ég í morgun þar sem hann er í hvíldarinnlögn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, með skaddaðan væng.
Athugasemdir