Jarðir Ratcliffe sameinaðar í 4 milljarða félag

Breski auð­kýf­ing­ur­inn James Ratcliffe hefur lánað félagi sínu minnst 6,5 millj­arða króna til jarða­kaupa á Íslandi. Hann flutti nýverið lög­heim­ili sitt til Mónakó og er þannig tal­inn spara hund­rað­falda þá upp­hæð í skatt­greiðslur.

Jarðir Ratcliffe sameinaðar í 4 milljarða félag
James Ratcliffe Auð­kýf­ing­ur­inn hefur lánað félagi sínu minnst and­virði 6,5 millj­arða króna til verk­efnis síns á Íslandi. Mynd: Tolga AKMEN / AFP

Hlutafé Fálka­þings ehf., félags­ins sem heldur utan um þorra land­ar­eigna breska auð­kýf­ings­ins James Ratcliffe á Íslandi, nemur nú tæpum 4 millj­örðum króna eftir sam­runa félaga í hans eigu. Er virði eigna hans á Íslandi því að lág­marki þessi upp­hæð, en sjálfur hefur Ratcliffe per­sónu­lega lánað félögum sínum 6,5 millj­arða til jarða­kaupa sinna á Norð­aust­ur­landi.

Þetta kemur fram í skjölum vegna hluta­fjár­aukn­ingar Fálka­þings sem sam­þykkt var í des­em­ber og breskum árs­reikn­ingi móð­ur­fé­lags þess. Markmið hluta­fjár­aukn­ing­ar­innar var að sam­eina í eitt félag flest eða öll félög Ratcliffe sem keypt hafa jarðir og lax­veiði­rétt­indi á Norð­aust­ur­landi und­an­farin ár. Var hlutafé Fálka­þings þannig aukið úr 820 millj­ónum í 3.968 millj­ónir og var hækk­unin öll greidd með hlutafé breska móð­ur­fé­lags­ins Halicilla Limited, sem er alfarið í eigu Ratcliffe.

Ratcliffe, sem er for­stjóri og eig­andi efna­fram­leiðsluris­ans Ineos, hefur und­an­farin ár keypt tugi jarða í Vopna­firði og Þistil­firði, sem flestar eru við lax­veiðiár. Í árs­reikn­ingi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár