Eigandi Arnarlax boðar „nýja tíma“ með aflandseldi en fagnar samtímis 10 þúsund tonna strandeldi í Djúpinu

Stærsti eig­andi Arnarlax, norski lax­eld­is­ris­inn Salmar, setur auk­inn kraft í þróun á aflandseldi á sama tíma og fyr­ir­tækið fær jákvæð við­brögð frá yfir­völdum á Íslandi um að stór­auka fram­leiðsl­una í fjörðum lands­ins.

Eigandi Arnarlax boðar „nýja tíma“ með aflandseldi en fagnar samtímis 10 þúsund tonna strandeldi í Djúpinu
Fram­tíðin er aflandseldið Gustav Witzøe, for­stjóri Salmar, stærsta eig­anda Arnarlax, lýsir því hvernig fram­tíð fisk­eldis í sjó í heim­inum liggi í aflandseldi langt frá landi. Samtímis stó­r­eykur Arnarlax sjó­kvía­eldi sitt við strendur lands­ins.

Stærsti eig­andi íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax, norska lax­eld­is­fyr­ir­tækið Salmar, setur stór­auk­inn kraft og fjár­muni í þróun á aflandseldi á eld­is­laxi í Noregi sam­tímis sem fyr­ir­tækið fagnar jákvæðum tíð­indum frá Skipu­lags­stofnun á Íslandi um að fá að fram­leiða 10 þús­und í sjó­kvíum í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Þetta kemur fram í árs­hluta­upp­gjöri Salmar AS fyrir fjórða árs­fjórð­ung árið 2020 og frétta­til­kynn­ingum frá félag­inu í gær. Salmar á rúm­lega 54 pró­senta hlut í Arn­ar­laxi, sem gengur undir nafn­inu Icelandic Salmon á ensku. 

Aflandseldi á laxi gengur út á að flytja kví­arnar sem lax­inn er alinn í burt úr fjörðum og frá ströndum landa og út á rúm­sjó þar sem haf­dýpi er meira og sjáv­ar­straumar eru sterk­ari. Til­gang­ur­inn er meðal ann­ars að koma á lagg­irnar umhverf­is­vænna lax­eldi í sjó og skapa meiri sátt um grein­ina. 

„Fókus Salmar á úthafs­fisk­eldi mark­aði upp­hafið á nýjum tímum í sjáv­ar­út­vegi.“
Gustav Witzøe

Þróar umhverfisvæna aðferð með hægri en fjárfestir í sjókvíaeldi með vinstri

Þetta þýðir í reynd að Salmar gengst við því að vera með annarri hendi að þróa umhverf­is­vænni lausn í lax­eldi en sjó­kvía­eldi við strendur landa sam­tímis og það heldur áfram að nota þessa minni umhverf­is­vænu fram­leiðslu­að­ferð, meðal ann­ars á Íslandi, þrátt fyrir umhverf­is­á­hrif hennar. Yfir­skrift og fyrsta setn­ingin í frétta­til­kynn­ingu Salmar AS um árs­hluta­upp­gjör sitt stað­festir þetta. „Á 30 ára afmæli sínu eykur Salmar kraft sinn í þróun á aflandseldi á fiski. Með þessu vill fyr­ir­tækið leggja sitt af mörkum við að leysa þær mik­il­vægu umhverf­is­legu og stað­bundnu áskor­anir sem eld­is­iðn­að­ur­inn stendur frammi fyrir.“ 

Enn fremur segir for­stjóri og helsti hlut­hafi Salmar AS, Gustav Witzøe, í frétta­til­kynn­ing­unni um upp­gjörið: „Fókus Salmar á úthafs­fisk­eldi mark­aði upp­hafið á nýjum tímum í sjáv­ar­út­vegi. Aflands­fisk­eldi opnar fyrir margs konar nýja mögu­leika á sjálf­bærri fram­leiðslu á mat­vælum og aðstoðar við að tryggja fæðu­fram­boð í heim­inum til lengri tíma litið,“ er haft eftir Witzøe í til­kynn­ing­unni. 

Skipulagsstofnun með jákvæð viðbrögð

Í árs­hluta­upp­gjöri fyr­ir­tæk­is­ins kemur svo fram að Salmar hygg­ist fram­leiða 14 þús­und tonn af eld­is­laxi í sjó­kvíum við Ísland árið 2021. Þetta er sú fram­leiðslu­að­ferð á eld­is­laxi sem for­svars­menn Salmar átta sig á að er minna umhverf­is­væn en aflandseldið sem þeir eru svo stoltir af að hafa byrjað með í grein­inni. Enn fremur segir í árs­hluta­upp­gjör­inu um atburði eftir lok reikn­ings­skila­dag að Arnarlax hafi fengið jákvæð við­brögð frá Skipu­lags­stofnun um 10 þús­und tonna fram­leiðslu í Ísa­fjarð­ar­djúp­inu en mik­ill styr hefur staðið um sjó­kvía­eldi í Djúpinu síð­ast­liðin ár. 

„Í febr­úar 2021 fékk Icelandic Salmon jákvæð við­brögð frá Skipu­lags­stofnun um ný fram­leiðslu­leyfi í Ísa­fjarð­ar­djúpi, sam­tals fyrir 10 þús­und tonnum. Í kjöl­farið á nið­ur­stöðu Skipu­lags­stofn­unaar mun umsókn Arnarlax verða send til MAST og Umhverf­is­stofn­unar til frekara mats og skrefa í átt að hinum nýju leyfum,“ segir í árs­hluta­upp­gjör­inu. 

Í skýrslu Skipu­lags­stofn­unar um eld­is­hug­myndir Arnarlax segir meðal ann­ars: „Skipu­lags­stofnun telur að helstu nei­kvæðu áhrif eld­is­ins felist í auknum áhrifum á botn­dýra­líf og eðl­is­þætti sjávar, mögu­legum áhrifum á villta lax­fiska vegna auk­ins álags laxalúsar og mögu­legum áhrifum á villta lax­fisk­stofna vegna erfða­blönd­unar.“

En Skipu­lags­stofnun telur samt að áhrif eld­is­ins á villta laxa­stofna verði óveru­leg: „Með vísan í áhættu­mat erfða­blönd­unar telur Skipu­lags­stofnun því að áhrif eldis Arnarlax á frjóum laxi á laxa­stofna í þeim ám sem áhættu­matið nær til verði óveru­leg,“ segir í nið­ur­stöð­unni um eld­is­hug­mynd­irnar.  Skipu­lags­stofnun leggst því ekki gegn sjó­kvía­eld­inu, meðal ann­ars á þessum for­sendum.

Ólíkar áherslur Kjartans og SalmarStærsti eig­andi Arnarlax talar um að fram­tíð fisk­eldis sé úthaf­seldi á meðan stjórn­ar­for­maður Arnarlax, Kjartan Ólafsson, vill 20-falda fram­leiðsl­una í fjörðum Íslands.

Talar fyrir 500 þúsund tonna laxeldi

Eins og Stundin hefur fjallað um, og þrátt fyrir að eig­andi Arnarlax telji sjó­kvía­eldi við strendur landa ekki vera fram­tíð­ina, þá hefur Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, stigið fram í kjöl­far COVID-19 far­ald­urs­ins og talað um fyrir því að marg­falda sjó­kvía­eldi á Íslandi.

Í grein í Morg­un­blað­inu í mars í fyrra sagði Kjartan að Ísland geti fram­leitt allt að 500 þús­und tonn af eld­is­laxi. Þetta er nærri 19-földun á fram­leiðslu á eld­is­laxi miðað við hveru mikil fram­leiðslan var 2019, 27 þús­und tonn, og er langtum meira en þau 140 þús­und tonn sem Haf­rann­sókna­stofnun hefur mælt með að sé raun­hæf fram­leiðsla hér á landi miðað við burð­ar­þol þeirra fjarða sem stofn­unin hefur kannað. 

Í grein­inni sagði Kjartan: „Með 500.000 tonna árs­fram­leiðslu á lax­fiski mætti marg­falda útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða og fylgja þar með far­sælli veg­ferð vina­þjóða okkar [Noregs og Færeyja].“ 

„Því fel­ast mikil tæki­færi fyrir Íslend­inga í að rækta fisk á bláu ökrunum okkar með stór­auk­inni áherslu á fisk­eldi.“
Kjartan Ólafsson

Til þess að þetta megi verða þurfa stjórn­mála­menn og stjórn­völd hins vegar að ganga í takt með lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum eins og Kjartan sagði í nið­ur­lagi sínu í grein­inni: „Því fel­ast mikil tæki­færi fyrir Íslend­inga í að rækta fisk á bláu ökrunum okkar með stór­auk­inni áherslu á fisk­eldi. Skýr stefna og mark­miða­setn­ing yfir­valda er nauð­syn­leg til að byggja ofan á þekk­ingu okkar og reynslu í sölu og fram­leiðslu sjáv­ar­af­urða og tryggja þannig stöðu okkar sem leið­andi sjáv­ar­út­vegs­þjóð í heim­inum til fram­tíðar.“

Eigandi Arnarlax, Salmar, telur hins vegar ekki, ólíkt Kjartani, að fram­tíð fisk­eldis liggi í „bláum ökrum“ í fjörðum landa heldur langt í burtu frá þeim, úti á rúm­sjó, þar sem umhverf­is­á­hrifin eru minni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár