Máli Jóns Baldvins aftur vísað frá og aftur kært til Landsréttar

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur í annað sinn vísað frá máli Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar varð­andi kyn­ferð­is­lega áreitni. Úrskurð­ur­inn verður í annað sinn kærður til Lands­réttar.

Máli Jóns Baldvins aftur vísað frá og aftur kært til Landsréttar
Jón Baldvin Hanni­bals­son Mál hans var sent aftur í hér­aðs­dóm þar sem það hafði ekki verið afgreitt innan tímara­mma. Mynd: pressphotos.biz

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur vís­aði í morgun frá máli Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra. Úrskurð­ur­inn verður kærður til Lands­réttar, að sögn Önnu Barböru Andra­dóttur, sak­sókn­ara hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara.

Þetta er í annað sinn sem málið fer þessa leið, en hér­aðs­dómur vís­aði því frá 7. jan­úar og var úrskurð­ur­inn kærður til Lands­réttar. Lands­réttur sendi það til baka í hér­aðs­dóm þar sem of langt hafði liðið á milli munn­legs mál­flutn­ings og nið­ur­stöðu í mál­inu. Nú fer það aftur til Lands­réttar sem þá lík­lega tekur afstöðu til frá­vís­un­ar­innar.

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur haldið því fram í kæru til Lands­réttar að meint kyn­ferð­is­leg áreitni Jóns Baldvins að heim­ili hans á Spáni sé refsi­verð sam­kvæmt spænskum lögum og að skýr­ingar stofn­un­ar­innar Eurojust stað­festi það. Krefst emb­ættið því þess að Lands­réttur vísi mál­inu til efn­is­legar með­ferðar fyrir hér­aðs­dómi.

Jóni Baldvini er gefið að sök að hafa laug­ar­dag­inn 16. júní 2018 á heim­ili sínu í Salobreña á Spáni strokið utan­klæða rass Carmenar, sem var gestur á heim­ili hans. Greindi Stundin í upp­hafi árs 2019 frá fram­burði hennar og fleiri kvenna um kyn­ferð­is­lega áreitni. Krefur hún Jón Baldvin um eina milljón í miska­bætur, en hann krafð­ist frá­vís­unar og málsvarna­launa úr rík­is­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

MeToo sögur um Jón Baldvin

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögnina
Fréttir

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögn­ina

„Ég er stolt af því að hafa rofið þögn­ina með því að koma dag­bók mömmu á fram­færi sem og bréf­inu sem Jón Baldvin Hanni­bals­son sendi henni,“ segir Val­gerður Þor­steins­dóttir, dóttir Þóru Hreins­dóttur en Stundin fjall­aði um bréfið og dag­bók­ina á dög­unum. Pabbi Val­gerðar sem var í sam­búð með Þóru fyrir um fjöru­tíu árum, eig­in­kona hans og systir Val­gerðar segja að frið­helgi einka­lífs Þóru sé rofin og van­virt.
Þegar konur eru stimplaðar geðveikar
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Leiðari

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Þegar konur eru stimpl­aðar geð­veikar

„Þetta á ekk­ert erindi við almenn­ing, frekar en geð­veiki dóttur minnar,“ voru við­brögð Jóns Baldvins við birt­ingu bréfa sem hann skrif­aði til ungrar stúlku í fjöl­skyld­unni. Í til­raun til að varpa athygl­inni frá sér benti hann á dóttur sína, sem svar­aði fyrir sig og var fyrir vikið dregin fyrir dóm af föður sínum. „Ég gat ekki sætt mig við að vera útmáluð geð­veik.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár