Facebook dregur úr stjórnmálaumræðu

Erfiðara verður að finna umræðu­hópa um stjórn­mál á Facebook og minna mun birt­ast af póli­tísku efni á for­síðu sam­fé­lags­mið­ils­ins, að sögn Mark Zuckerberg. Breyt­ing­arnar verða gerðar á heims­vísu.

Facebook dregur úr stjórnmálaumræðu
Mark Zuckerberg For­stjóri Facebook vill draga úr eld­fimri stjórn­mála­um­ræðu. Mynd: Anthony Quintano from Honolulu, HI, United States, CC BY 2.0 <https://creativecommons.org/licenses/by/2.0>, via Wikimedia Commons

Facebook mun ekki lengur mæla með spjall­hópum um stjórn­mál og skoðar skref til að draga úr stjórn­mála­efni sem birt­ist í frétta­veit­unni á for­síðu not­enda. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Mark Zuckerberg, for­stjóra Facebook.

Zuckerberg segir mik­il­vægt að sá félags­skapur sem fólk finnur á sam­fé­lags­miðl­inum sé heil­brigður og jákvæður. Þetta sé eitt­hvað sem fyr­ir­tækið hafi unnið að lengi. „Ein leið sem við förum að þessu er að taka niður hópa sem brjóta reglur um ofbeldi eða hat­urs­orð­ræðu,“ skrifar hann. „Í sept­em­ber deildum við því að við hefðum fjar­lægt yfir eina milljón hópa á síð­asta ári. En það eru einnig margir hópar sem við viljum ekki endi­lega hvetja fólk til að ganga í, jafn­vel þó þeir brjóti ekki regl­urnar okkar.“

Segir hann að til dæmis hafi sam­fé­lags­mið­ill­inn hætt að mæla með hópum um stjórn­mál og sam­fé­lags­mál í aðdrag­anda kosn­inga í Banda­ríkj­unum síð­ast­lið­inn nóv­em­ber, en slík með­mæli birt­ast gjarnan á síðum not­enda. „Við erum enn að fín­stilla hvernig þetta virkar, en við ætlum að halda hópum um sam­fé­lags­mál og stjórn­mál fyrir utan með­mæli okkar til lengri tíma og við ætlum að fylgja þeirri stefnu á heims­vísu. Svo ég sé skýr þá er þetta fram­hald af vinnu sem við höfum staðið í lengi til þess að kæla hita­stigið og draga úr umræðum og sam­fé­lögum sem valda sundr­ung.“

„Fólk vill ekki að stjórn­mál og rifr­ildi taki yfir upp­lifun þeirra“

Zuckerberg bætir því við að með sama hætti séu til skoð­unar skref sem minnka póli­tískt efni í frétta­veitu not­enda sem birt­ist á Facebook for­síðu þeirra. „Svo ég sé skýr, þá gerum við fólki að sjálf­sögðu ennþá kleift að taka þátt í póli­tískum hópum og umræðum ef það vill. Þetta getur oft verið mik­il­vægt og hjálp­legt. Slíkt getur verið leið til að skipu­leggja gras­rót­ar­hreyf­ingu, hafa hátt um órétt­læti eða læra frá fólki með ólík sjón­ar­mið. Svo við viljum að þær umræður haldi áfram að eiga sér stað. En ein helstu skila­boðin sem við heyrum frá sam­fé­lagi okkar núna er að fólk vill ekki að stjórn­mál og rifr­ildi taki yfir upp­lifun þeirra af þjón­ustu okkar.“

Segir hann að lokum að þetta ár muni Facebook ein­beita sér að því að hjálpa millj­ónum manns að taka þátt í „heil­brigðum hópum“ og vera enn sterkara afl til að stefna fólki saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár