Frávísun í máli Jóns Baldvins kærð til Landsréttar

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur kært frá­vísun í máli Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar til Lands­réttar. Málið varðar meinta kyn­ferð­is­lega áreitni hans á Spáni sum­arið 2018.

Frávísun í máli Jóns Baldvins kærð til Landsréttar
Jón Baldvin Hanni­bals­son Mál sem snýr að meintri kyn­ferð­is­legri áreitni ráð­herr­ans fyrr­ver­andi á Spáni heldur áfram.

Frávísun Hér­aðs­dóms Reykja­víkur á máli Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, hefur verið kærð til Lands­réttar. Þetta stað­festir Anna Barbara Andra­dóttir, sak­sókn­ari hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur vís­aði í gær frá máli emb­ætt­is­ins gegn Jóni Baldvini vegna meintra kyn­ferð­is­brota gegn Carmen Jóhanns­dóttur á Spáni í júní 2018. Ákæru­efnið er ekki refsi­vert sam­kvæmt spænskum lögum að mati dóms­ins.

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur hins vegar kært úrskurð hér­aðs­dóms til Lands­réttar.

Jóni Baldvini er gefið að sök að hafa laug­ar­dag­inn 16. júní 2018 á heim­ili sínu í Salobreña á Spáni strokið utan­klæða rass Carmenar, sem var gestur á heim­ili hans. Greindi Stundin í upp­hafi árs 2019 frá fram­burði hennar og fleiri kvenna um kyn­ferð­is­lega áreitni. Krefur hún Jón Baldvin um eina milljón í miska­bætur, en hann krafð­ist frá­vís­unar og málsvarna­launa úr rík­is­sjóði sem hér­aðs­dómur veitti honum með úrskurð­inum í gær, rúm­lega 917 þús­und krónur í málsvarn­ar­laun Vil­hjálms H. Vil­hjálms­sonar, lög­manns hans.

Hér­aðs­dómur vís­aði mál­inu frá þar sem ekki væri sýnt fram á að hátt­semin væri refsi­verð sam­kvæmt spænskum lögum. Ekki væri unnt að refsa Jóni Baldvini eftir íslenskum hegn­ing­ar­lögum fyrir brot sem eru framin þar sem refsi­vald ann­ars ríkis nær til.

Guðjón St. Mart­eins­son hér­aðs­dóm­ari segir í úrskurði sínum að spænska laga­greinin sé mikið frá­brugðin íslensku laga­á­kvæði um kyn­ferð­is­lega mis­notkun. „Er það mat dóms­ins að ákærði beri að njóta vafans um þetta og ber því að taka kröfu hans til greina og vísa mál­inu frá dómi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

MeToo sögur um Jón Baldvin

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögnina
Fréttir

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögn­ina

„Ég er stolt af því að hafa rofið þögn­ina með því að koma dag­bók mömmu á fram­færi sem og bréf­inu sem Jón Baldvin Hanni­bals­son sendi henni,“ segir Val­gerður Þor­steins­dóttir, dóttir Þóru Hreins­dóttur en Stundin fjall­aði um bréfið og dag­bók­ina á dög­unum. Pabbi Val­gerðar sem var í sam­búð með Þóru fyrir um fjöru­tíu árum, eig­in­kona hans og systir Val­gerðar segja að frið­helgi einka­lífs Þóru sé rofin og van­virt.
Þegar konur eru stimplaðar geðveikar
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Leiðari

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Þegar konur eru stimpl­aðar geð­veikar

„Þetta á ekk­ert erindi við almenn­ing, frekar en geð­veiki dóttur minnar,“ voru við­brögð Jóns Baldvins við birt­ingu bréfa sem hann skrif­aði til ungrar stúlku í fjöl­skyld­unni. Í til­raun til að varpa athygl­inni frá sér benti hann á dóttur sína, sem svar­aði fyrir sig og var fyrir vikið dregin fyrir dóm af föður sínum. „Ég gat ekki sætt mig við að vera útmáluð geð­veik.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár