Annáll ársins „fordæmalausa“

Íslend­ingar reyndu að aðlag­ast nýjum veru­leika í Covid-19 far­aldr­inum. Kallað var eftir sam­stöðu, en veiran varp­aði ljósi á átaka­línur mis­skiptra gæða.

Annáll ársins „fordæmalausa“
Á COVID-deild Heil­brigð­is­starfs­fólk var í fremstu víg­línu í bar­átt­unni við veiruna á sama tíma og fjöldi þess var án kjara­samn­ings. Mynd: Tómas Guðbjartsson

Ársins 2020 verður minnst sem árs­ins þar sem við máttum ekki snert­ast, árs­ins þar sem plön voru sett í bið­stöðu, árs­ins þar sem við misstum ást­vini og ótt­uð­umst um fram­tíð­ina. Það má þó einnig minn­ast árs­ins með þakk­læti fyrir það sem við þó höfðum, fyrir fólkið í fremstu víg­línu sem stóð vakt­ina og fyrir sam­stöð­una á „for­dæma­lausum“ tíma, þó oft hafi á hana reynt.

Á nýárs­dag grun­aði fáa í hvað stefndi. Það var þó strax 7. jan­úar að kín­versk stjórn­völd til­kynntu Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­inni að þau til­felli lungna­bólgu í Wuhan sem hefðu verið til rann­sóknar væru í raun nýtt afbrigði kór­ónu­veiru. Gaf stofn­unin loks veirunni nafnið COVID-19, sem er stytt­ing á „coronavirus dise­ase 2019“, enda hafði fyrst verið til­kynnt um smitin í fyrra. Ekki er enn ljóst hvort rekja megi sjúk­dóm­inn til mat­ar­mark­að­ar­ins í Wuhan þar sem fjöldi fólks smit­að­ist, en lík­leg­ast er að veiran hafi smit­ast úr dýrum í mann­fólk.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Uppgjör ársins 2020

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár