Stærsti eigandinn í íslensku laxeldi orðinn ríkasti maður Noregs

Gustav Magnar Witzoe, erf­ingi lax­eld­is­ris­ans Salmar, á eignir upp á 311 millj­arða króna. Salmar er stærsti eig­andi Arnarlax, sem er stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki Íslands. Íslenska ríkið gefur fyr­ir­tækjum eins og Arn­ar­laxi kvóta í lax­eldi á Íslandi á meðan Salmar þarf að greiða hátt verð fyrir kvóta í Noregi.

Stærsti eigandinn í íslensku laxeldi orðinn ríkasti maður Noregs
Ríkasti maður Noregs Norski „laxa­erf­ing­inn“, eins og erf­ingjar lax­eld­is­fyr­ir­tækja eru kall­aðir í Noregi, Gustav Magnar Witzoe, er orð­inn rík­asti maður lands­ins. Auðlegð hans er áætluð 311 millj­arðar króna.

Stærsti ein­staki hag­mun­að­il­inn og eig­and­inn í íslensku lax­eld­is­fyr­ir­tæki, hinn 27 ára gamli Gustav Magnar Witzoe, er orð­inn rík­asti maður Noregs. Gustav Magnar Witzoe er erf­ingi hluta­bréfa í norska lax­eld­is­ris­anum Salmar AS sem faðir hans, Gustav Witzoe eldri, hefur byggt upp síð­ustu ára­tug­ina. Salmar er meiri­hluta­eig­andi stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tækis á Íslandi, Arn­ar­laxi, en Gustav Magnar á um 50 pró­senta hlut í Salmar. Frá þessu var greint í norskum fjöl­miðlum í morgun þegar árlegar tölur yfir rík­asta fólk Noregs voru birtar. 

10 rík­ustu menn NoregsHér má sjá list­ann yfir 10 rík­ustu menn Noregs á skjá­skoti frá norska blað­inu Dagnes Nær­ingsliv.

Eignir upp á 311 milljarða

Eignir Gustavs Magnar Witzoe eru metnar á tæp­lega 21 millj­arð norskra króna eða sem nemur rúm­lega 311 millj­örðum íslenskra króna sam­kvæmt norska við­skipta­blað­inu Dagens Nær­ingsliv. Gustav tók við öllum helstu eignum föður síns fyrir fjórtán árum þegar hann var 13 ára gam­all en faðir hans heldur áfram …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár