Frú Ragnheiður safnaði 11 milljónum á 11 ára afmælinu

Skaða­minnk­un­ar­verk­efni Rauða kross­ins mun eign­ast nýjan bíl til að sinna heim­il­is­lausu fólki og þeim sem nota vímu­efni í æð. Söfnunin gekk fram úr vonum.

Frú Ragnheiður safnaði 11 milljónum á 11 ára afmælinu
Frú Ragn­heiður Snæ­fríður Jóhann­es­dóttir og Steinunn Ingi­björg voru á afmæl­is­vakt­inni.

Söfnun Frú Ragn­heiðar, verk­efnis Rauða kross­ins til skaða­minnk­unar, skil­aði 11 millj­ónum króna. Safnað var fyrir nýjum bíl, en Frú Ragn­heiður hefur í 11 ár haldið úti sér­út­búnum bíl sem keyrir um höf­uð­borg­ar­svæðið og veitir fólki sem notar vímu­efni í æð og heim­il­is­lausum ein­stak­lingum aðstoð. Þá eru syst­ur­verk­efni einnig starf­ræk á Akureyri og Suð­ur­nesjum

„Við í Frú Ragn­heiði hófum söfnun fyrir viku síðan fyrir nýjum bíl og stefndum að því að safna 10 millj­ónum,“ segir í til­kynn­ingu á Facebook síðu verk­efn­is­ins. „Aldrei hefði okkur grunað að við myndum vera nálægt því að ná mark­mið­inu. Í gær, þegar Frúin fagn­aði 11 ára afmæli á loka­degi söfn­unar, gerð­ist eitt­hvað krafta­verki lík­ast. Það gleður okkur að til­kynna að við náðum að safna 11 millj­ónum á 11. starfs­ári okkar!“

Alls eru um 100 sjálf­boða­liðar í verk­efn­inu sem skipta með sér vöktum í bílnum og hefur þjón­ustan hald­ist óskert í gegnum kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Með pen­ing­unum sem söfn­uð­ust verður fjár­fest í nýjum bíl og hann inn­réttur til að sinna þörfum skjól­stæð­inga verk­efn­is­ins.

„Það er erfitt að koma þakk­læt­inu sem býr í hjarta okkar í orð,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Einn not­andi þjón­ustu okkar komst þó vel að orði í gær og gaf okkur leyfi til að deila: „Ég hef verið á göt­unni í mörg ár, og notað vímu­efni í fleiri ár, og sjaldan ef ein­hvern tím­ann upp­lifað að sam­fé­lagið geri ráð fyrir mér og mínum þörfum. Ég hef fylgst með söfn­un­inni og vel­vild­inni í kringum hana, allir að reyna að safna fyrir nýjum bíl hjá Frúnni fyrir okkur. Mér líður eins og sam­fé­lagið sé að við­ur­kenna mínar þarfir á ein­hvern und­ar­legan hátt.““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár