Samherji lýsir viðskiptum, þar sem grunur er um samsæri, eins og eðlilegri kvótaleigu

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji reynir nú að þvo hendur sínar af mútu­greiðslum í Namibíu með því að segja í Youtube-mynd­böndum og í fréttum að fyr­ir­tækið hafi greitt mark­aðs­verð fyrir kvót­ann. Alls 75 pró­sent af mark­aðs­verð­inu sem Samherji seg­ist hafa greitt fyrir kvóta í Namgomar-við­skipt­unum rann hins vegar til félags ráð­gjafa Samherja í skatta­skjóli. Þessi við­skipti eru nú rann­sökuð sem sam­særi.

Samherji lýsir viðskiptum, þar sem grunur er um samsæri, eins og eðlilegri kvótaleigu
Íslands­heim­sóknir „ráð­gjafa“ Samherja „Ráð­gjafar“ Samherja komu í ítrek­aðar heim­sóknir til Íslands á þeim árum þegar við­skipta­sam­band þeirra við Samherja stóð yfir. Þeir sjást hér með Þor­steini Má Bald­vins­syni og tveimur Angóla­mönnum í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn í tengslum við Namgomar-við­skipin.

„Gentlemen, We are in business. Sacky“, sagði Namib­íu­mað­ur­inn Sacky Shangala í tölvu­pósti til tveggja starfs­manna Samherja, Jóhann­esar Stef­áns­sonar og Sigurðar Ólasonar, sem og við­skipta­fé­laga síns, James Hatuikulipi, þann 14. febr­úar árið 2014.

Tölvu­póst­ur­inn var sendur til að til­kynna þeim að félagið Namgomar, sem var form­lega í eigu namibíska og angólska rík­is­ins en var í raun sett á lagg­irnar í þeim til­gangi einum að útvega íslenska útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja kvóta í lönd­unum tveimur, hefði fengið leyfi til að stunda veiðar í Angóla.

Þetta var for­senda fyrir því að Samherji gæti fengið þann kvóta sem þetta milli­ríkja­sam­komu­lag á milli land­anna tveggja, sem kallað er Namgomar-við­skiptin, fól í sér.

Í raun var til­gangur við­skipt­anna ein­ungis tví­þættur: Að útvega Samherja kvóta ann­ars vegar og að útvega „ráð­gjöfum“ Samherja í Namibíu pen­inga frá Samherja. Pen­inga­greiðslur þessar hafa verið til rann­sóknar í Namibíu og á Íslandi sem mútu­greiðslur eftir að Kveikur, Stundin og Al Jazeera fjöll­uðu um …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár