Tillaga menntamálaráðuneytisins tætt í sundur í umsögnum

Umboðs­maður barna varar við því að til­laga mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins um breytta við­mið­un­ar­stunda­skrá muni auka van­líðan skóla­barna. Ráðu­neytið vill auka íslensku- og nátt­úru­fræði­kennslu, en draga úr val­fögum. Skóla- og frí­stunda­ráð Reykja­vík­ur­borgar telur til­lög­una varla stand­ast lög.

Tillaga menntamálaráðuneytisins tætt í sundur í umsögnum
Hörð gagn­rýni Tillaga mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins er sögð geta leitt af sér frek­ari van­líðun íslenskra ung­menna. Mynd: Shutterstock

Skóla- og frí­stunda­ráð Reykja­vík­ur­borgar gagn­rýnir harð­lega til­lögu mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins að breyt­ingu á við­mið­un­ar­stunda­skrá í grunn­skólum lands­ins. Í til­lög­una vanti að mati ráðs­ins skýrar áætl­anir um boð­aðar áherslu­breyt­ingar, ekki liggi fyrir fjár­hags­leg grein­ing á kostn­aði og leiða megi líkum að því að til­lagan brjóti gegn lögum um grunn­skóla. Sömu afstöðu lýsir umboðs­maður barna, Lands­sam­tökin Þroska­hjálp og Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga, auk ann­arra.

Tillaga að breyt­ingum á við­mið­un­ar­stund­ar­skrá grunn­skóla var birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda 26. ágúst síð­ast­lið­inn. Þar kemur fram að við­mið­un­ar­stund­ar­skráin hafi verið óbreytt allt frá gild­is­töku aðal­námskrár grunn­skóla árið 2011. Tilefni breyt­inga nú sé að unnið sé að mótun mennta­stefnu til árs­ins 2030, þar sem meðal ann­ars eigi að auka vægi íslensku­kennslu og nátt­úru­fræði. Er í til­lög­unni bent á „við­var­andi slakan árangur í íslensku og nátt­úru­fræði sem hefur birst í nið­ur­stöðum PISA“.

Skera valfög niður við trog

Í til­lög­unni er gert ráð fyrir að auka tals­vert tíma til íslensku­kennslu í 1.-7. bekk grunn­skóla. Til þess að svo megi verða á að skera niður allan tíma í þeim bekkjum sem hingað til hefur verið eyrna­merktur val­fögum. Alls er verið að skera val­tíma í 1.-4. bekk niður úr fimm klukku­stundum á viku og niður í ekki neitt. Í 5.-7. bekk hefur val­tími verið tvær klukku­stundir og fjöru­tíu mín­útur en verður eng­inn ef til­lagan verður sam­þykkt.

Þá er gert ráð fyrir að tvö­falda þann tíma sem fer til nátt­úru­fræði­kennslu í 8.-10. bekk. Til að svo megi verða þarf að skerða þann tíma sem hingað til hefur farið í val­greinar um sex klukku­stundir á viku og yrði hann þá 8,5 klukku­stundir í stað 14,5 klukku­stunda.

Gengur gegn lögum um grunnskóla

Í lögum um grunn­skóla segir í 26. grein, sem fjallar um val í námi, að frá upp­hafi grunn­skóla skulu nem­endur eiga val í námi sínu. Mark­miðið sé að gera nem­endur ábyrga fyrir eigin námi og skapa sveigj­an­leika í skóla­starfi.

Þá segir í sömu grein að í 8.-10. bekk skulu nem­endur velja náms­greinar og náms­svið í allt að fimmt­ung náms­tím­ans. Verði til­laga mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins sam­þykkt færi sá tími sem gæf­ist í val á ung­linga­stigi hins vegar niður í 11 pró­sent náms­tím­ans.

„Gerir umboðs­maður barna athuga­semdir við að lagðar séu til breyt­ingar sem séu til þess fallnar að auka frekar á van­líðan“

Á þetta er bent í umsögn skóla- og frí­stunda­ráðs Reykja­vík­ur­borgar. Þar er einnig bent á að rík krafa sé í sam­fé­lag­inu öllu um sveigj­an­leika og að rann­sóknir bendi ein­dregið til að áhuga­hvöt sé stór þáttur í námsá­nægju og árangri í námi, sér­stak­lega hjá eldri nem­endum. „Það skýtur því skökku við að leggja til að helm­inga mögu­leika skóla og nem­enda til vals á ung­linga­stigi og fjar­lægja allan sveigj­an­leika varð­andi val á yngsta- og mið­stigi grunn­skóla. Í til­lög­unni er það langt gengið í skerð­ingu á vali að spyrja má hvort í reynd sé verið að taka úr sam­bandi 26. grein grunn­skóla­lag­anna því fram­kvæmdin end­ur­ómar trauðla laga­text­ann.“

Segja tillöguna ganga þvert á fyrirliggjandi samkomulag

Salvör NordalUmboðs­maður barna

Í umsögn umboðs­manns barna um til­lög­una, hvað varðar skerð­ingu á vali, segir að til­lögur ráðu­neyt­is­ins gangi þvert gegn mark­miðum aðal­námskrár um val­greinar. Rann­sóknir hafi þá á síð­ustu árum sýnt fram á vax­andi kvíða og and­lega van­líðan íslenskra ung­menna. „Með hlið­sjón af þeirri stöðu gerir umboðs­maður barna athuga­semdir við að lagðar séu til breyt­ingar sem séu til þess fallnar að auka frekar á van­líðan enda ljóst að val­greinar skipta ung­menni oft miklu máli og eru mik­il­væg tæki­færi fyrir þau til þess að sinna eigin hugð­ar­efnum innan skól­ans sem hluta af eigin námi.“

„Það er algjört grund­vall­ar­at­riði í umbótum að gera ekki meira af því sem ekki er nægj­an­lega vel gert“

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga bendir á í umsögn um til­lög­una að fækkun kennslu­stunda í val­greinum kunni að leiða til fækk­unar kennslu­stunda í list- og verk­greinum, sem gangi þvert á sam­komu­lag mennta- og menn­inga­mála­ráð­herra, Samtaka iðn­að­ar­ins og Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga sem und­ir­ritað var 25. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Þá lýsa Lands­sam­tökin Þroska­hjálp áhyggjum af því að skerða eigi val­frelsi nem­enda og fjöl­breytni í námi. Telja lands­sam­tökin „að ekki hafi verið færð rök fyrir því í grein­ar­gerð að auk­inn tími í íslensku og nátt­úru­greinum muni leiða til betri frammi­stöðu í þessum greinum í PISA könn­unum.“

Engin greining gerð á vandanum

Í umsögn skóla- og frí­stunda­ráðs Reykja­vík­ur­borgar eru enn fremur tíunduð fleiri atriði sem ráðið gagn­rýnir í til­lög­unni. Þannig er til­tekið að fjölgun kennslu­stunda í nátt­úru­fræði myndi hafa í för með sér að enn færri kennslu­stundum yrði stýrt af fag­mennt­uðum kenn­urum, aðeins fimmt­ungi kennslu­stunda. Við­var­andi skortur sé á kenn­urum með fag­menntun í nátt­úru­fræði­greinum og engar leiðir séu kynntar í til­lög­unni til að bregð­ast við þeirri stöðu.

Þá sé ekki lagt mat á það hvort núver­andi kennslu­efni sé sé nægj­an­legt eða full­nægj­andi og ekki heldur hvort til staðar sé full­nægj­andi aðstaða í skólum til auk­innar nátt­úru­fræði­kennslu, né fjár­hags­leg grein­ing á kostn­aði sveit­ar­fé­lag­anna vegna mögu­legra úrbóta þar á.

Þá sé almennt ekki gerð grein­ing á því hvar skó­inn kreppi í kennslu í nátt­úru­fræði­greinum eða íslensku, svo bæta megi árangur íslenskra ung­linga í PISA próf­unum. „Það er algjört grund­vall­ar­at­riði í umbótum að gera ekki meira af því sem ekki er nægj­an­lega vel gert.“

„Um við­var­andi slakan árangur mennta­kerf­is­ins er að ræða, ekki nem­enda“

Í sama streng taka Lands­sam­tökin Þroska­hjálp, sem gera athuga­semd við að gengið sé út frá því að vanda­málið sé „við­var­andi slakur árangur nem­enda“. Fremur eigi að rýna og end­ur­skoða kennslu­að­ferðir og umgjörð náms heldur en að svipta nem­endur kosti á ein­stak­ling­smið­uðu námi, þar sem þeir hafi tæki­færi til að velja náms­greinar eftir áhuga­sviði og hæfi­leikum.

Umboðs­maður barna gerir athuga­semdir við sama orða­lag og „áréttar að um við­var­andi slakan árangur mennta­kerf­is­ins er að ræða, ekki nem­enda“. Ekki séu færð fram tök fyrir því að fjölgun kennslu­stunda ein og sér komi til með að bæta árangur nem­end á kostnað val­frelsis og fjöl­breytni og ekki komi fram að til standi að taka upp nýstár­legar eða fjöl­breytt­ari kennslu­að­ferðir, heldur eigi ein­göngu að fjölga kennslu­stundum. „Ekki eru færð fram nein rök fyrir því að betri árangur náist með þessu móti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár