Algjör steypa

Verk­fræði er það fyrsta sem manni dettur í hug þegar maður lendir á hinum risa­stóra flug­velli í Dúbaí. Arki­tektúr og hönnun þegar maður horfir upp alla 828 metrana á Burj Khalifa, hæstu bygg­ingu heims í sömu borg. Borgríki, sem er umvafið sandi, eyði­mörk. Það síð­asta sem manni dettur í hug er stein­steypa, enda er hún ekk­ert sexí, bara eitt­hvað sem er.

Algjör steypa
Hluti af Berlín­ar­múr­num, sem byggður var 1961.

Á eftir vatni er steypa það efni sem mann­skepnan notar mest, kolefn­is­fót­spor steypunnar er risa­stórt, 2,8 millj­arðar tonna á ári, eða 8% los­unar á CO2 á heims­vísu. Steypan, bygg­ing­ar­iðn­að­ur­inn, er í þriðja sæti sem umhverf­is­skað­valdur á eftir olíu­iðn­að­inum og land­bún­aði. 

Kín­verjar eru stór­tækir, bara á síð­ustu þremur árum hafa þeir notað jafn mikla steypu og Banda­ríkja­menn gerðu alla síð­ustu öld, frá 1900 til 2000. Það er brjálað. 

Burj Khalifa í Dúbaí, hæsta bygg­ing ver­aldar.

Umhverf­is­á­hrifin af þess­ari gríð­ar­miklu sem­ents­notkun er óaft­ur­kræf. Nú er orðin vöntun á góðum sandi í Kína og í nágranna­lönd­unum, eins og í Víetnam og Kambódíu. Lífríki Mekong-fljóts er nærri dautt, eftir að fljótið hefur verið dýpkað um marga metra, mörg hund­ruð kíló­metra inn í land. Allt fyrir sand, sem seldur er áfram til Kína, til að byggja hús og vegi. 

Og það er ekki bara þarna austur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár