Ný stjórnarskrá afsprengi ofbeldis og sögufölsunar eftir hrun

Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins líkir fólki sem mót­mælti í Bús­á­halda­bylt­ing­unni við ræn­ingja. Sagan hafi verið fölsuð af fjöl­miðlum í þágu útrás­ar­vík­inga, en lög­regla hafi unnið ótrú­legt afrek við að stöðva ofbeld­is­að­gerðir.

Ný stjórnarskrá afsprengi ofbeldis og sögufölsunar eftir hrun
Davíð Oddsson Ekki er merkt hver höf­undur leið­ara Morg­un­blaðs­ins er. Mynd: Pressphotos

Leið­ara­höf­undur Morg­un­blaðs­ins segir að „ofbeld­is­að­gerðir“ eftir banka­hrun hafi haft það mark­mið að „steypa um grunn­stoðum á Íslandi“ með dyggum stuðn­ingi fræði­manna og fjöl­miðla. Skipu­lögð múgæs­ing hafi verið um breyt­ingu stjórn­ar­skrár­innar.

Leiðarar blaðs­ins eru ómerktir og því á ábyrgð rit­stjóra, en þeir eru Haraldur Johann­es­sen og Davíð Oddsson, sem var seðla­banka­stjóri í banka­hrun­inu 2008. Vinstri­st­jórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttir breytti lögum um Seðla­bank­ann og fækk­aði seðla­banka­stjórum svo Davíð þurfti að víkja. Var hann í kjöl­farið ráð­inn rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins af nýjum eig­endum þess, sem að mestu eru aðilar í sjáv­ar­út­vegi. Hafa þeir lagt til 1,9 millj­arða króna frá árinu 2009 til að fjár­magna tap­rekstur blaðs­ins.

„Það er eng­inn áhugi með þjóð­inni eftir „nýrri stjórn­ar­skrá“,“ segir í leið­ar­anum. „Þó er því haldið fram með reglu­bundnum hætti. Af hverju fór málið af stað með ógn­væn­legum póli­tískum þunga 2009? Hreina vinstri­st­jórnin skol­að­ist inn á þing með drjúgt fylgi eftir vel skipu­lagt upp­nám þjóð­ar­innar, grjót­kast og hávaða sem gerði Alþingi ill­fært að sinna sínum verkum.“

Nýja stjórn­ar­skráin svo­kall­aða var samin af stjórn­laga­ráði og var afhent Alþingi árið 2011. Í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið 2012 studdu tveir þriðju kjós­enda það að stjórn­ar­skráin yrði lögð til grund­vallar frum­varps um nýja stjórn­ar­skrá.

Segir höf­undur að vinstri­st­jórnin hafi hangið eins og „óþvegin tuska á snúru“ eftir mikið fylgis­tap. „Fámennt lög­reglu­lið lands­ins hafði unnið ótrú­legt afrek, og alls ekki sjálf­gefið í því and­rúms­lofti, með því að ná að verj­ast ofurefli liðs, þar sem margir huldu and­lit sitt eins og ræn­ingjar gera og aðrir þeir sem illt hafa í hyggju.“

„[...] margir huldu and­lit sitt eins og ræn­ingjar gera og aðrir þeir sem illt hafa í hyggju“

Enn­fremur heldur höf­undur því fram að mark­miðið með mót­mæl­unum hafi verið að verja útrás­ar­vík­inga og „læða land­inu“ inn í Evr­ópu­sam­bandið. „Alþjóð­lega banka­á­fall­inu, sem vissu­lega átti íslenska hlið, var á hinn bóg­inn snúið upp í sér­ís­lenskra gerð úr tengslum við allt annað. Með atbeina Rík­is­út­varps­ins og fjöl­miðla Baugs voru spunnar upp sakir sem beindu sjónum frá þeim sem höfðu mis­notað láns­traust þjóð­ar­innar út á við í eigin þágu og blindað stjórn­mála­menn til að afneita aðvör­un­ar­orðum um hvað stefndi óhjá­kvæmi­lega í. Mark­miðið með ofbeld­is­að­gerð­unum í bland við fölsun nýlið­innar sögu var að steypa um grunn­stoðum á Íslandi þegar þjóðin næði ekki vopnum sínum vegna tíma­bund­ins fárs,“ segir í leið­ar­anum.

Höfundur segir loks að ekki sé fjöður fyrir því að þjóðin krefj­ist stjórn­ar­skrár­breyt­inga. „Lítið vant­aði upp á að „fræði­menn“, sem aldrei bera nokkra ábyrgð, tækju ekki fullan þátt í upp­lausn­ar­spunanum, en þó með virð­ing­ar­verðum und­an­tekn­ingum,“ skrifar hann. „En þeir sem ekki höfðu sjálfs­traust eða styrk til að stand­ast freist­ing­una né langvar­andi þrá eftir kast­ljósi, sem gæfi þeim styrk til að hætta sér út fyrir háskóla­lóð­ina, slógu til og urðu minni menn. Sumir þeirra tóku undir að óhjá­kvæmi­legt væri vegna „hruns­ins“ að breyta stjórn­ar­skránni en færðu þó ekki rök fyrir teng­ing­unni. Engin önnur þjóð sem lenti í áþekku efna­hags­mót­læti gekk með grillu af því tagi. Stjórn­ar­skrá á að breyta seint og hægt og allra síst í upp­blásnu ástandi knúnu fram í krafti skipu­lagðrar múgæs­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár