Kjaradeilur sigla Herjólfi í strand

Félag vél­stjóra og málm­tækni­manna og Félag skip­stjórn­ar­manna hafa gefið út að með­limir þeirra muni ekki ganga í störf félags­manna Sjó­manna­fé­lags­ins á Herjólfi á meðan að þeir eru í verk­falli. Herj­ólfur mun ekki sigla til Vest­manna­eyja á meðan að vinnu­stöðvun er í gangi.

Kjaradeilur sigla Herjólfi í strand
Skips­verjar án kjara­samn­inga Félags­menn Sjó­manna­fé­lags Íslands hafa verið án kjara­samn­inga frá því að Herj­ólfur ohf. tók við rekstri á ferj­unni í fyrra. Mynd: Aðsend mynd

Ljóst er að Vest­manna­eyja­ferjan Herj­ólfur mun ekki sigla á meðan að verk­stöðvun Sjó­manna­fé­lags Íslands er í gangi. Fyrsta heils­dags vinnu­stöðv­unin fór fram í gær, 7. júlí, en boð­aðar hafa verið fleiri og lengri vinnu­stöðv­anir á kom­andi dögum. Félags­menn ann­ara verka­lýðs­fé­laga þver­taka fyrir að ganga í störf þeirra sem leggja þau niður. Tals­maður verka­lýðs­fé­lags­ins úti­lokar ekki vinnu­stöðvun yfir Versl­un­ar­manna­helg­ina sjálfa ef ekki nást á samn­ingar.

Í sam­tali við Stundina stað­festir Jónas Garð­ars­son, eft­ir­lits­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands, að félags­menn hans sem sigla á Herjólfi hafi verið án kjara­samn­ings frá því að Herj­ólfur ohf. tók við rekstri á ferj­unni af Sæferðum/Eimskipi í fyrra. 17 af 20 félags­mönnum á Herjólfi greiddu atkvæði með vinnu­stöðvun í júní. Samtök atvinnu­lífs­ins vís­aði vinnu­stöðv­un­inni til félags­dóms sem dæmdi skip­verjum í hag. Fyrsta vinnu­stöðv­unin fór fram í gær, 7. júlí, en hún varði frá mið­nætti til mið­nættis.

Stálin stinn í kjaradeilu

Jónas segir að helstu kröfur félags­ins í samn­inga­gerð­inni séu vakt­ar­fyr­ir­komu­lag eins og það var áður en bæj­ar­út­gerðin tók yfir rekstr­inum, og fleira starfs­fólk á vakt.

„Í dag siglir fólk í tvo daga og fær einn dag í frí, en það þýðir að fólk er að jafn­aði að vinna þrjár af hverjum fjórum helgum. Krafan okkar er að fólk sigli dag á móti degi, sem þýddi þá að fólk ynni í eina viku eða ein­hverja daga í senn og fengi jafn marga frí­daga á móti. Síðan er ágrein­ingur um fjölda þern­anna sem eru um borð. Þetta er kvenna­stétt að mestu og álagið er allt of mikið á þeim þannig að við erum að fara fram á fjölgun um borð.“

Fleiri og lengri vinnu­stöðv­anir hafa verið boð­aðar. Að óbreyttu mun Herj­ólfur ekki sigla 14. til 15. júlí og 28. til 30. júlí. Jónas er úti í Vest­manna­eyjum að ræða við þá sem koma að mál­inu. Aðspurður seg­ist hann vona að ná sáttum innan skamms en úti­lokar ekki vinnu­stöðvun yfir Versl­un­ar­manna­helg­ina sjálfa.

„Við þurfum bara að sjá hvað setur, maður veit ekk­ert um það. Það er alla­veg­ana stálin stinn eins og er.“

Félag skip­stjórn­ar­manna og Félag vél­stjóra og málm­tækni­manna sendu frá sér yfir­lýs­ingu í dag um að félags­menn þeirra muni ekki ganga í störf skip­verja sem leggja niður störf. Lesa má yfir­lýs­ing­una í heild sinni hér að neðan.

Félag skip­stjórn­ar­manna og Félag vél­stjóra og málm­tækni­manna senda frá sér yfir­lýs­ingu vegna kjara­deilu Sjó­manna­fé­lags Íslands við Vest­manna­eyja­ferj­una Herjólf ohf.

Ekki hefur enn verið gerður kjara­samn­ingur við starfs­menn í Sjó­manna­fé­lagi Íslands um borð í m.s. Herjólfi.

Hvorki skip­stjórn­ar­menn né vél­stjórar á m.s. Herjólfi munu ganga í störf háseta og þerna meðan á verk­falls­að­gerðum stendur enda hefur Félags­dómur dæmt í mál­inu og vinnu­stöðv­unin er lög­mæt.

Það er grunn­krafa launa­fólks að fá að semja um sín kjör og beita verk­falls­vopn­inu ef það þarf. Það er öllum ljóst sem þekkja til að á meðan á verk­falli stendur hjá hásetum og þernum mun skipið ekki sigla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Verkalýðsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár