Lögmannsstofa Samherja reynir að fá Jóhannes í viðtal um Namibíumálið

Eva Joly, lögmaður uppljóstr­arans Jóhannessar Stef­ánssonar, hefur hafnað beiðni Wikborg Rein um viðtal á þeim forsendum að einka­fyrirtækið, sem vinnur fyrir Samherja sé ekki opinber aðili og hafi enga lögsögu í málinu.

Lögmaður Jóhannesar hefur sagt nei
Lögmaður Jóhann­esar hefur sagt nei Eva Joly, lög­maður Jóhann­esar Stef­áns­sonar, hefur hafnað beiðni Wikborg Rein um að hann veiti lög­manns­stof­unni við­tal vum Namib­íu­málið. Mynd: Kristinn Magnússon

Norska lögmanns­stofan Wikborg Rein, sem vinnur að innri rannsókn á starfsemi Samherja í Namibíu fyrir hönd útgerðar­fyrir­tækisins, hefur reynt að fá uppljóstrarann í málinu, Jóhannes Stef­ánsson, í viðtal um málið. Þetta herma heimildir Stundarinnar. Wikborg Rein vinnur nú að skýrslu um starfsemi Samherja í Namibíu sem kynnt verður fyrir stjórn útgerðarinnar á næstunni.

Samkvæmt heimildum Stundarinnar hefur lögmaður Jóhannesar, norsk-franski lögfræðingurinn og rannsóknar­dómarinn Eva Joly, hafnað beiðni Wikborg Rein um að ræða við Jóhannes á þeim forsendum að hann hyggist ræða við opinbera rann­sóknaraðila málsins á Íslandi, Noregi, Namibíu og mögulega í öðrum löndum. Wikborg Rein er ekki opinber rann­sóknaraðili heldur einka­fyrirtæki sem Samherji hefur ráðið og greiðir fyrir að gera kostaða rannsókn á fyrir­tækinu. 

Eva Joly varð lands­þekkt á Íslandi eftir hrunið 2008 þegar hún veitti ráðleggingar um hvernig ætti að rannsaka efnahags­brotamálin sem áttu sér stað hér á landi. Hún starfaði meðal annars fyrir embætti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli siðferðis­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undrast þögn íslenskra stjórn­valda um þá staðreynd að stærsta spill­ing­armál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir tilstilli íslensks fyrir­tækis. Spyr hvort hundrað milljóna styrkur Orkusjóðs sé ríkis­styrkt spilling og sendir forsætis­ráðherra opið bréf og óskar liðsinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sakaður um stórfelld skatta­laga- og gjaldeyris­brot í Namibíu og fram­salskrafa væntanleg

Ríkis­saksóknari Namibíu er enn ákveðinn í því að óska eftir framsali þriggja stjórn­enda Samherja­félaga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjaldeyris­lögum muni mögulega bætast við sakar­efnin á hendur þeim. Stórfelld skatta­lagabrot Samherja­félaga sögð til rann­sóknar. Samherja­maður segir íslensk yfirvöld þegar hafa neitað að framselja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­ríkis­ráðherra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Samherja­málið við íslenska ráðherra og aðstoðar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér forseta­embættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arftaki formanns flokksins, sitjandi forseta sem hyggst setjast í helgan stein. Flokkurinn nýtur slíks yfirburðar­fylgis að innan­flokks­kosningin er sögð raun­verulegt forseta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­ánsson, uppljóstrari í Samherja­málinu, er sáttur við gang rann­sóknarinnar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagnrýnir þó aðgerðar­leysi yfirvalda við því þegar Samherja­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í viðbrögðum Samherja­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum liðist.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár