Bæjarstjóri Ölfuss: „Hér á Íslandi glímum við við ofbeldi almennings gagnvart lögreglu“

Elliði Vign­is­son bæj­ar­stjóri í Ölfus seg­ir al­menn­ing á Ís­landi beita lög­reglu of­beldi á með­an of­beldi lög­reglu er mót­mælt í Banda­ríkj­un­um. „Gjör­sam­lega ósam­bæri­legt,“ seg­ir Ill­ugi Jök­uls­son rit­höf­und­ur.

Bæjarstjóri Ölfuss: „Hér á Íslandi glímum við við ofbeldi almennings gagnvart lögreglu“
Elliði Vignisson Bæjarstjóri Ölfuss birti mynd af bróður sínum, lögreglumanni, með færslunni. Mynd: b'Picasa'

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss og áður Vestmannaeyja, segir almenning á Íslandi beita lögregluna ofbeldi. Setur hann það í samhengi við mótmæli í Bandaríkjunum um þessar mundir vegna ofbeldis lögreglu þarlendis í garð almennings.

Elliði birti færslu á Facebook í gærkvöldi með ljósmynd af bróður sínum, Svavari Vignissyni, sem er lögreglumaður í Vestmannaeyjum. „Um allan heim mótmælir fólk nú eðlilega ofbeldi lögreglu í USA í garð almennings,“ skrifar Elliði. „Hér á Íslandi glímum við við ofbeldi almennings gagnvart lögreglu. #gerumbetur “

Bæjarstjórinn tilgreinir ekki nánar hvað hann á við með ofbeldi íslensks almennings gagnvart lögreglu. Í Bandaríkjunum er áætlað að lögreglan hafi drepið um þúsund manns í fyrra, að því er kemur fram í rannsóknum Mapping Police Violence. Svart fólk var um fjórðungur þeirra sem drepnir voru, þrátt fyrir að vera aðeins 13 prósent af íbúum landsins.

Mótmæli hafa staðið yfir í borgum Bandaríkjanna undanfarna daga og hefur lögreglan beitt mótmælendur táragasi, skotið á fólk með gúmmíkúlum og keyrt lögreglubíla inn í hópa mótmælenda. Uppþotin hafa átt sér stað í kjölfar þess að George Floyd, þeldökkur maður, lést eftir handtöku lögreglu í Minneapolisborg, eftir að lögreglumaður setti hné sitt og hvíldi þunga sinn á hálsi mannsins. 

Illugi Jökulsson rithöfundur er einn margra sem blanda sér í samræðurnar á Facebook síðu bæjarstjórans. „Elliði, í alvöru talað, þetta er svo gjörsamlega, gjörsamlega, gjörsamlega ósambærilegt að þig setur verulega ofan í mínum augum við þetta,“ skrifar hann. „Það er ekki út af pólitík af neinu tagi, heldur er þetta bara svo sorglega dómgreindarlaust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslendingar þurfa að forðast „breska kvillann“
1
ErlentHorft til Evrópu

Ís­lend­ing­ar þurfa að forð­ast „breska kvill­ann“

Þeg­ar Ír­land og Bret­land gengu sam­an í Evr­ópu­banda­lag­ið ár­ið 1973 var Ír­land fá­tækt fyrr­ver­andi ný­lendu­ríki, efna­hags­lega háð hinni gömlu herra­þjóð sinni. Hálfri öld síð­ar er Ír­land orð­ið auð­ug mið­stöð banda­rískra tæknifyr­ir­tækja á borð við Microsoft og Google. Bret­land hef­ur hins veg­ar yf­ir­gef­ið sam­band­ið. Hvaða hlut­verk lék ESB í upp­gangi Ír­lands og hvers vegna fet­uðu ná­granna­rík­in hvort sinn veg?
Borgþór Arngrímsson
4
Pistill

Borgþór Arngrímsson

Á Kast­rup eykst um­ferð­in en það ger­ir meng­un­in líka

Um­ferð­in um Kast­rup flug­völl við Kaup­manna­höfn eykst ár frá ári. Bú­ist er við að tæp­lega 36 millj­ón­ir far­þega fari um völl­inn á þessu ári og brott­far­ir og kom­ur eru að jafn­aði um 700 á degi hverj­um. Ný 60 þús­und fer­metra við­bót við flug­stöðv­ar­bygg­ing­una verð­ur tek­in í notk­un á næsta ári. Íbú­ar í ná­grenni flug­vall­ar­ins hafa áhyggj­ur af meng­un sem fylg­ir flug­um­ferð­inni.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár