Sami morg­un­matur alla daga Siggi er hraustur og þakkar hollu og góðu matar­æði fyrir góða heilsu. Hann fær sér sama morg­un­mat á hverjum morgni, sem er hafra­grautur með súru slátri, og alltaf tvær skeiðar af lýsi með. En á sunnu­dögum gerir hann vel við sig og fær sér skyr og korn­flex í morg­un­mat. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Mitt líf hefur snúist um sauðfé og rekavið“

Siggi er meðal síð­ustu sauð­fjár­bænd­anna í Árnes­hreppi á Ströndum. Hann er 81 árs og býr í hús­inu þar sem hann ólst upp. Hann hefur alltaf búið þar, fyrir utan tvo vetur. Heiða Helga­dóttir ljós­mynd­ari fylgd­ist með sauð­burði hjá Sigga.

Á bænum Litlu-Ávík á Ströndum er nú sauð­burður í fullum gangi.

Bóndinn á bænum, Sig­ur­steinn Svein­björns­son, eða Siggi eins og hann er alltaf kall­aður, er 81 árs gam­all og býr einn í hús­inu sem hann ólst upp í, en hann tók við búinu af mömmu sinni og stjúpa. Siggi vann einu sinni í fiski í Sand­gerði í tvo vetur, ann­ars hefur hann alltaf búið á Litlu-Ávík.

„Mitt líf hefur snú­ist um sauðfé og reka­við, ég þekki lítið annað,“ segir hann.

Út um eld­hús­glugg­annNorð­ur­fjörður á Ströndum blasir við og stór­kost­legur fjalla­hring­ur­inn í kring.
Í þorpið þrisvar á áriSiggi fer sjaldan af bæ. Hann fer til Hólma­víkur um það bil þrisvar á ári til að sinna ýmsu eins og við­haldi á bílnum og því­líkt. En til Reykja­víkur fer hann eins sjaldan og hann …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár