Brynjar aðeins lagt fram eitt frumvarp og eina fyrirspurn á ferlinum

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, ver fjölda fyrir­spurna sinna á Alþingi og býður Brynjar Níelsson, þingmann Sjálfstæðis­flokks, „velkominn í gagnsæis­klúbbinn“. Eina frumvarp Brynjars til þessa hefur varðað refsingar við tálmun.

Brynjar Níelsson og Björn Leví Gunnarsson
Brynjar Níelsson og Björn Leví Gunn­ars­son Þing­mönn­unum greinir á um mik­il­vægi fyr­ir­spurna á Alþingi.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokks, hefur lagt fram fyrir­spurnir á Alþingi um kostnað vegna þeirra fyrir­spurna sem þing­flokkur Pírata hefur lagt fram. Sjálfur hefur hann á sjö ára ferli á Alþingi aðeins lagt fram eina fyrir­spurn áður og eitt frumvarp sem fyrsti flutnings­maður.

Brynjar hefur verið gagn­rýninn á stjórnmál Pírata og segir flokkinn kæfa þingið í fyrir­spurnum. Lagði hann því sjálfur í vikunni fram tíu fyrir­spurnir til allra ráðuneyta og óskaði eftir upplýsingum um fjölda fyrir­spurna og sér í lagi kostnað ráðuneytanna við að svara fyrir­spurnum Pírata.

Björn Leví svaraði sjálfur fyrir­spurninni að hluta á Facebook síðu sinni í gærkvöldi. Segir hann að á yfir­standandi þingi séu Píratar með flestar fyrir­spurnir, eða rúman fjórðung heildar­fjölda fyrir­spurna sem eru 351 talsins. Einungis muni þó 6 fyrir­spurnum á þeim og flokknum í öðru sæti, Miðflokknum. Tvö þingin þar á undan hafi Píratar einnig trónað á toppnum, en þar áður hafi Vinstri græn leitt þing­flokkana í fjölda fyrir­spurna.

Þá bendir Björn Leví á að vegna fyrir­spurna hans um aksturs­kostnað þingmanna hafi kostnaðurinn lækkað úr 42,7 millj­ón­um árið 2017 í 30,7 millj­ón­ir árið 2018 og svo í 26,1 millj­ón árið 2019 samkvæmt áætlun. „Ég skal lofa því að fyrir­spurnirnar mínar kostuðu minna en þetta klúður stjórn­valda,“ sagði hann jafnframt um mistök við laga­setningu við lög um almanna­tryggingar sem urðu til þess að ríkið þurfti að greiða lífeyrisþegum 5 milljarða króna. „En þau urðu vegna þess að þing­málinu var troðið í gegnum þingið rétt fyrir þinglok 2016,“ bætti hann við.

„Ég býð því Brynjar velkominn í gagnsæis­klúbbinn“

„Að öðru leyti er þetta ágætis spurning hjá Brynjari,“ skrifar Björn Leví. „Auðvitað eigum við að vita þetta. Það er bara dálítið kaldhæðnislegt að ég og Jón Þór [Ólafsson, þingmaður Pírata] höfum þegar spurt um þetta, á aðeins annan hátt að vísu. Ég nú nýlega með því að spyrja um kostnað lögbundinna verkefna. Það má vera að sundur­liðunin verði ekki nægilega góð til þess að sjá nákvæmlega þessar upplýsingar en að sjálfsögðu eiga þær að vera til, eins og allt annað í opinberum fjármálum. Ég býð því Brynjar velkominn í gagnsæis­klúbbinn. Það vantar alltaf fleiri því ógagnsæið í opinberum fjármálum er algjör hörmung.“

Eina frumvarpið um refsingu við tálmun

Brynjar var kosinn á þing árið 2013. Síðan þá hefur hann aðeins lagt fram eitt frumvarp sem fyrsti flutnings­maður, ef undan er skilið nefndar­frumvarp sem hann lagði fram þegar hann var til skamms tíma formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar þingsins.

Frum­varpið sem Brynjar lagði fram hefur hann lagt fram þrisvar sinnum frá 2017, en það varðar refsingu við tálmun eða takmörkun á umgengni. Í nýjustu útgáfu þess vilja flutnings­menn, allir þeirra þingmenn Sjálfstæðis­flokksins, að tálmun varði sektum eða fangelsi allt að fimm árum, en að slík brot sæti aðeins opinberri rannsókn að undan­genginni kæru barna­verndar til lögreglu. 

Þá hefur hann lagt fram eina fyrir­spurn áður en hann spurðist fyrir um fyrir­spurnir Pírata. Var sú fyrir­spurn um sorgar­orlof feðra, en hann lagði hana fram nú í mars á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár