Heima er bezt

Þegar maður hefur haft lifi­brauð af því að ferð­ast um og mynda íslenska nátt­úru fyrir bækur og tíma­rit í hátt í fjöru­tíu ár, hljóta auð­vitað ein­hverjir staðir að standa upp úr. Staðir sem kalla á mann aftur og aftur og eru síbreyti­legir eftir árs­tíðum og birtu. Hér kemur lít­ill listi til að hjálpa okkur að ferð­ast heima í sumar.

Heima er bezt
Hver í Hrafn­tinnu­skeri Mynd: Páll Stefánsson

Ef maður er að leita að logni, þá fer maður auð­vitað á Bíldudal og hefur þá allan spennadi Arn­ar­fjörð­inn sem bónus. Hvestu, Dynjanda og auð­vitað Geir­þjófs­fjörð. 

Ef það er birtan sem kallar þá er það Langa­nesið, en hvergi er mið­næt­ur­sólin fal­legri en þarna í Norð­ur­sýsl­unni. Og ekki skemmir nágrennið við Detti­foss, Ásbyrgi og þessa hóf­stilltu feg­urð og kyrrð sem Bakka­fjörður sunnan við nesið hefur upp á að bjóða. 

Sund­laugin á Hofsósi.

Ef það eru litir, þá er það Fjalla­bakið, bæði líp­ar­ít­fjöllin í Land­manna­laugum eða hvera­svæðið í Hrafn­tinnu­skeri. Þar getur maður alveg týnt sér í þús­und metra hæð yfir sjáv­ar­máli. Og hvergi eru and­stæð­urnar í íslenskri nátt­úru eins sterkar, sjóð­andi jörð og íshellar í nánu nábýli. Þarna eru frá­bærar göngu­leiðir, bæði langar og strangar, og aðrar styttri, eins og frá skál­anum uppi í Laugum að Brenni­steins­öldu. 

Ef …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár