Upprisa Kims og fæðing falsfréttar

Fjöl­miðlar um allan heim hafa greint frá því und­an­farið að leið­togi Norður-Kóreu væri alvar­lega veikur og hefði jafn­vel lát­ist eftir mis­heppn­aða hjarta­skurð­að­gerð. Sú frétt virð­ist hafa verið upp­spuni frá rótum og má auð­veld­lega rekja hana til áróð­ursmiðla á vegum banda­rískra yfir­valda. Sú er einnig raunin þegar kemur að fjölda ann­arra furðu­frétta af hinu ein­angr­aða ríki Norður-Kóreu, sem margar eru skáld­aðar í áróð­urs­skyni.

Upprisa Kims og fæðing falsfréttar

Erlendar fréttir geta oft orðið skraut­legar ef þær eru skrif­aðar eða þýddar af fólki sem hefur ekki minnsta skiln­ing á umfjöll­un­ar­efn­inu og skortir því allt sam­hengi. Fræg er sagan af því um árið þegar íslenskur frétta­maður mun hafa farið í loftið með þá frétt að Nelson Mandela hefði tekið þátt í alþjóð­legum kappakstri til stuðn­ings fátækum. Þar var að að vísu um þýð­ing­ar­villu að ræða en einnig skort á sam­hengi, það sem Mandela tók þátt í var „international rally aga­inst poverty“ og komu þar engir bílar við sögu. 

Senni­lega er ekk­ert land sem fær jafn skakka umfjöllun og Norður-Kórea. Sökum þess að ríkið er nán­ast alveg lokað fyrir umheim­inum, og er hluti af heitu póli­tísku áróð­urs­stríði, virð­ast jafn­vel reynd­ustu frétta­menn til­búnir að trúa hverju sem er upp á þar­lend stjórn­völd. Það skal eng­inn efast um þá skelf­ingu sem það er að lifa undir slíkri ógn­ar­stjórn, en fréttir af …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár