Kynferðisofbeldi notað sem vopn til að vekja ótta

Páll Ásgeir Dav­íðs­son lög­maður hefur und­an­farin ár tekið að sér ýmis verk­efni á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna, svo sem í Kósóvó, Austur-Kongó, Súdan, Haítí og Kamerún. „Störf mín ganga út á að styrkja inn­viði ríkja til þess að fólk fái notið rétt­lætis og búi við frið.“

Páll Ásgeir Dav­íðs­son býr ásamt fjöl­skyldu sinni í mið­bænum. Svolítið suð­rænn stíll ein­kennir stof­una. Loft­ljósið lætur gesti hugsa um 1001 nótt. „Ég hef alltaf verið svo­lítið öðru­vísi,“ segir hann og fer að fyrra bragði að tala um upp­runa sinn. „Ég er hálfur Indónesi en pabbi er frá Indónesíu og ég er trú­leg­ast fyrsta blanda Íslend­ings og Indónesa.

Ég fann hins vegar ekk­ert fyrir því að vera öðru­vísi hér á Íslandi. Ég byrj­aði snemma að bera út Moggann og þegar ég átti í sam­skiptum við skjól­stæð­inga mína var mér oft hrósað fyrir að tala góða íslensku. Ég hélt að ég hefði ein­stakt tak á tungu­mál­inu en í raun sá fólk lít­inn, asískan dreng sem tal­aði reiprenn­andi íslensku og fannst það vera óvana­legt. Stundum þegar ég rekst á gamlar myndir úr barna­skól­anum mínum, Mela­skóla, spyr ég mig hver sé þessi dökki í hópnum en fatta svo að það er ég.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár