Kjartan T. Gunn­ars­son 53 ára, faðir tveggja bræðra sem báðir hafa setið í fang­elsi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hin duldu fórnarlömb refsingar

„Fjöl­skyldan var alger­lega í rúst.“ Aðstand­endur segja frá því hvernig til­vera þeirra hrundi þegar ást­vinur þeirra var dæmdur í fang­elsi. Skömmin dvelur í þögn­inni, segir Kjartan T. Gunn­ars­son, faðir tveggja drengja sem hafa farið í fang­elsi.

Til­gangur fang­els­is­vistar er að refsa ein­stak­lingi fyrir brot sín gagn­vart sam­fé­lag­inu, eðli máls­ins sam­kvæmt. Fang­els­is­vist hefur þó í flestum til­fellum gríð­ar­leg áhrif á aðstand­endur þess dæmda og þeir upp­lifa mikið varn­ar­leysi, skömm, kvíða og sorg. Fjöl­skyldur fanga hafa stundum verið nefndar hin duldu fórn­ar­lömb refs­ingar.

Sex ein­stak­lingar á aldr­inum 20 til 64 ára gáfu okkur tæki­færi til að skyggn­ast inn í reynslu­heim sinn sem aðstand­endur fanga og er nöfnum þeirra allra breytt, nema Kjartans, sem kemur undir réttu nafni og mynd. Fang­arnir eru af báðum kynjum og ýmist for­eldrar, systk­ini eða börn aðstand­enda sem rætt var við. Sumir eru núna í afplánun og aðrir hafa lokið sinni refsi­vist.  

Dómur, og hvað svo?

„Það var ein­hver skrýtin og óþægi­leg orka í loft­inu.“ (Sigrún, 20 ára, um bið­ina áður en móðir hennar hóf sína afplánun.)

Rann­sóknir hafa sýnt fram á að tíma­bilið frá dómi og fram að fang­els­is­vist sé oft­ast þrungið spennu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár