Safna undirskriftum fyrir forsetaframboð Guðmundar Franklín

Guð­mundur Franklín Jónsson segir að í ljós komi á næstu vikum hvort hann skori sitj­andi for­seta Guðna Th. Jóhann­es­son á hólm. „Veiran ræður för og ég hlýði Víði.“

Safna undirskriftum fyrir forsetaframboð Guðmundar Franklín
Guð­mundur Franklín Jónsson Guð­mundur Franklín segir fólk hafa skorað á sig.

Stuðn­ings­menn Guð­mundar Frank­líns Jóns­sonar safna nú með­mælum fyrir fram­boð hans til for­seta, að því fram kemur á vef­síðu með titl­inum „Guð­mundur Franklín Jónsson á Bessa­staði 2020“.

„Ég hef ekki til­kynnt opin­ber­lega um fram­boð til for­seta Íslands og ef ég geri það, verður það ekki strax, en veiran setur strik í reikn­ing­inn og kosn­ing­unum verður kannski frestað,“ segir Guð­mundur Franklín í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. „Fólk er að skora á mig og hefur gert alveg frá ára­mótum. Ef ég býð mig fram fer það ekki fram hjá neinum, en það kemur í ljós á næstu vikum. Veiran ræður för og ég hlýði Víði.“

For­seta­kosn­ingar fara fram laug­ar­dag­inn 27. júní 2020. Guðni Th. Jóhann­es­son til­kynnti í nýársávarpi sínu að hann gæfi kost á sér til end­ur­kjörs. Fram að þessu hefur eng­inn til­kynnt um mót­fram­boð, en sam­kvæmt lögum falla kosn­ing­arnar niður ef aðeins ein kjör­geng mann­eskja er í fram­boði.

Með­mæla­söfnun á net­inu hefur verið send á fólk, þar sem það er hvatt til að styðja Guðmund Franklín til fram­boðs. „Félagi minn Guð­mundur Franklín Jónsson ætlar að skora Guðna Th. á hólm í næstu for­seta­kosn­ingum og er að safna með­mæl­endum,“ segir á vef­síð­unni. „Ég ætla að ger­ast svo frakkur og biðja þig um hvort ég mætti senda þér með­mæl­enda­lista til und­ir­skriftar, ein­göngu fyrir þig og þína og nátt­úru­lega vini þína.  Það þarf að safna allt að 3000 með­mæl­endum en safn­ast er saman kemur. Ef þú ert til í að leggja honum lið, þá þyrfti ég ein­göngu að fá heim­il­is­fangið þitt, svo ég geti póst­lagt einn með­mæl­enda-lista til þín. FRAM TIL SIGURS 27. JÚNÍ 2020.“

Guð­mundur Franklín til­kynnti einnig um fram­boð til for­seta í síð­ustu kosn­ingum árið 2016. Nú í jan­úar hvöttu tveir Facebook vinir hann til að fara aftur í for­seta­fram­boð. „Takk fyrir áskor­un­ina, ég er að sjálf­sögðu að hugsa málið,“ svar­aði hann. „Það er ekki hægt þjóð­fé­lags­lega séð að hafa Guðna önnur fjögur ár í við­bót. Hann er þegar búinn að skaða þjóð­fé­lagið eins og í Orku­pakka­mál­inu. Hann má ekki geta skaðað Ísland oftar, þessu verður að linna, sér­stak­lega með lif­andi aðild­ar­um­sókn ESB sem er enn í vinnslu. Ef að eng­inn góður gefur sig fram á næstu tveimur mán­uðum þá kem ég til með að hugsa þetta grafal­var­lega. Því skal ég lofa þér.“

„Það er ekki hægt þjóð­fé­lags­lega séð að hafa Guðna önnur fjögur ár í við­bót“

Guð­mundur Franklín er með BSc próf í við­skipta- og hag­fræði og meist­ara­próf í alþjóða­stjórn­málum og hag­fræði. Hann starf­aði í 13 ár sem verð­bréfa­miðl­ari á Wall Street hjá fyr­ir­tækj­unum Bersec International, Opp­en­heimer & Co. og Burnham Securities. Hann hefur starfað sem hót­el­stjóri á Hotel Klippen í Gudhjem á Borg­und­ar­hólmi í Danmörku frá árinu 2013.

Guð­mundur Franklín stofn­aði stjórn­mála­flokk­inn Hægri grænir árið 2010, en hann rann inn í þjóð­ern­is­flokk­inn Íslensku þjóð­fylk­ing­una árið 2016. Var Guð­mundur Franklín þá hættur sem for­maður. Vorið 2016 bauð hann sig fram til for­seta Íslands, en dró það til baka þegar Ólafur Ragnar Grímsson, sitj­andi for­seti, til­kynnti óvænt um að hann yrði aftur í fram­boði sem hann svo síðar hætti við. Lýsti Guð­mundur Franklín yfir stuðn­ingi við hann, en hafði ekki skilað með­mæla­listum á þeim tíma­punkti.

Um haustið 2016 sótt­ist hann svo eftir sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík fyrir Alþing­is­kosn­ingar. Nýverið hefur hann tekið þátt í starfi Orkunnar okkar, sem beitti sér gegn inn­leið­ingu Þriðja orku­pakk­ans, og skrifað fjölda greina um þjóð­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár