90 börnum neitað um efnismeðferð frá 2015

63 börn voru send úr landi undan­farin fimm ár á grund­velli Dyflinnar­reglu­gerðarinnar.

Brottvísunum mótmælt
Brott­vís­unum mót­mælt Fjölda mála hjá Útlend­inga­stofnun hefur verið mót­mælt opin­ber­lega und­an­farin ár. Mynd: Davíð Þór

911 börn hafa sótt um alþjóð­lega vernd á Íslandi undan­farin fimm ár eða verið hluti af fjöl­skyldum sem hafa sótt um. 185 barnanna voru undir tveggja ára aldri.

Þetta kemur fram í svari Áslaugar Örnu Sigurbjörns­dóttur dómsmála­ráðherra við fyrir­spurn Andrésar Inga Jónssonar þingmanns um umsóknir barna árin 2015 til 2019. Ekki var hægt að svara fyrir um niður­stöður allra málanna, þar sem sum þeirra eru enn til meðferðar. Þá er hluti þeirra í meðferð hjá kærunefnd útlendinga­mála og niður­staða málanna gæti breyst.

90 af börnunum var synjað um efnis­meðferð, að því fram kemur í svarinu, en 58 barnanna úr þeim hópi voru frá ríkjum sem síðar hafa verið sett á lista yfir örugg uppruna­ríki. 178 umsóknir á tíma­bilinu voru dregnar til baka. 63 börn voru send úr landi á grund­velli Dyflinnar­reglu­gerðarinnar. 267 börn fengu jákvæða niður­stöðu um alþjóð­lega vernd, viðbótar­vernd eða dvalar­leyfi af mannúðar­ástæðum.

Tekin viðtöl við 93 af börnunum sem um ræðir. Viðtölin fara annað hvort fram hjá Útlendinga­stofnun eða í Barnahúsi. „Öllum börnum sem sækja um alþjóð­lega vernd hér á landi, hvort sem er í fylgd foreldra sinna eða fylgdar­laus, er boðið í viðtal hafi þau þroska, getu og vilja til þess,“ segir í svari ráðherra. „Starfs­fólk stofnunarinnar sem hefur hlotið til þess sérstaka þjálfun hefur tekið viðtöl við börn allt niður í fimm ára aldur. Þannig er börnum tryggður réttur til að tjá sig sjálf um aðstæður sínar, heilsufar, líðan og fleira.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár