Börnin í verkfallinu

Leik­skóla­börn í Reykja­vík borða hádeg­is­mat á bíla­stæðum og eru í pössun hjá afa og ömmu. For­eldrar kom­ast ekki til vinnu nema endrum og sinnum og álag eykst á fjöl­skyldur með hverjum deg­inum sem líður í kja­ara­deilum Eflingar og Reykja­vík­ur­borgar.

Börnin í verkfallinu
Afi bjargar mál­unum Jón Hálf­dan­ar­son, 72 ára afi þeirra Hauks Víðis og Layfeyjar Víðis Leós­barna, sækir þau flesta daga og hefur ofan af fyrir þeim á meðan að á verk­falli stendur. Amma Krilla, Kristína Steins­dóttir, hefur líka hjálpað mikið og þau í raun bjargað for­eldrum þeirra Lauf­eyjar og Hauks sem eiga afar erfitt með að vera frá vinnu þessa dag­ana. Mynd: Heiða Helgadóttir

Helm­ingur leik­skóla­barna í Reykja­vík hefur nú mátt búa við skerta eða jafn­vel enga þjón­ustu á leik­skólum borg­ar­innar í þrjár vikur sam­fleytt. Ótíma­bundið verk­fall Eflingar hófst 17. febr­úar síð­ast­lið­inn en áður höfðu tíma­bundin verk­föll sett mark sitt á leik­skól­ana. Verkfall Eflingar hefur mis­mun­andi áhrif á um 3.500 leik­skóla­börn. Fjöldi barna hefur ekki getað farið í leik­skóla í þrjár vikur, önnur börn hafa fengið að mæta dag og dag, fyrir hádegi eða eftir hádegi, eftir atvikum. Opn­un­ar­tími leik­skóla hefur verið skertur fyrir þau börn sem þó geta verið þar og mötu­neyti eru í mörgum til­vikum lokuð með þeim afleið­ingum að börn sitja í bílum með for­eldrum sínum á bíla­stæðum leik­skól­anna og borða sam­lokur og epli. 

Ólétt og verk­fallið tekur íHeiðrún Arna Frið­riks­dóttir er komin sjö mán­uði á leið og er föst heima með Óliver sem er tæp­lega tveggja ára. Hann skilur lítið í þessu róti öllu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár