„Hvaða gagn gerir mynd um helförina með ekkert um gyðinga?“

Birt­ing­ar­myndir gyð­inga eru ólíkar í per­sónum mynd­anna Jojo Rabbit og Uncut Gems. Gagn­rýn­andi segir þá fyrri of örláta í garð nas­ista og er komin með nóg af myndum um hvítt fólk sem lærir að hætta að hata eftir að hafa kynnst mann­eskju úr minni­hluta­hópi.

„Hvaða gagn gerir mynd um helförina með ekkert um gyðinga?“
Jojo Rabbit Hitler er ímynd­aður vinur ungs drengs sem lærir að hætta að hata gyð­inga. Mynd: KIMBERLEY FRENCH/FOX SEARCHLIGHT

Ungur drengur í Hit­lesæsk­unni á for­ingj­ann sjálfan sem ímynd­aðan besta vin, en þarf að takast á við eigin sann­fær­ingu þegar hann kemst að því að ung stúlka, gyð­ingur, er í felum á heim­ili hans. Um þetta fjallar kvik­myndin Jojo Rabbit, sem hlaut Ósk­arsverð­launin á dög­unum fyrir besta hand­rit byggt á áður útgefnu efni.

Frá því að til­kynnt var um gerð mynd­ar­innar hefur mikið verið rætt um hvort í henni mundi heppn­ast að fjalla á gam­an­saman hátt um kúgun gyð­inga og gjörðir nas­ista, sér­stak­lega Adolf Hitler. Leik­stjóri mynd­ar­innar, Nýsjá­lend­ing­ur­inn Taika Waititi sem einnig leikur hinn kjána­lega Hitler í mynd­inni, hefur sjálfur lýst henni sem „háðsá­deilu gegn hatri“ og hefur hún hlotið góða aðsókn og umtal.

Upprisa hat­urs­hópa í Banda­ríkj­unum og Evrópu og aukin opin­ber andúð á gyð­ingum hefur vakið umræðu um birt­ing­ar­myndir gyð­inga í listum. Jojo Rabbit hefur í því sam­hengi verið rædd í sömu andrá og önnur mynd, Uncut Gems …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár